Bílar

Polestar O2 hugmyndabíllinn er rafmagns blæjubíll

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Polestar O₂.
Polestar O₂.

O2 er annar hugmyndabíllinn frá Polestar og er honum ætlað að kynna hugmyndir framleiðandans um nýja kynslóð rafbíla.

O2 er annar bíllinn sem smíðaður er eftir hugmyndafræði sem Polestar kallar Precept. Mikið hefur verið lagt upp úr að nota endurunnin efni og sjálfbærni hefur verið áhersluatriði við hönnunina eins og Polestar leggur alla jafna mikla áherslu á.

Polestar O₂.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Polestar.

Polestar O2 er ætlað að endurskilgreina hvað blæju sportbílar sem ganga fyrir rafmagni þýðir. Nafnið O2 vísar meðal annars til þess að hann er með blæju og ætlunin er að skapa skemmtilega akstursupplifun, sérstaklega með toppinn niðri.

„Polestar O2 er hetjan í okkar vöruframboði. Bíllinn opnar dyr að leyniklefa sem er fullur af framtíðarmöguleikum. Þetta er forsmekkurinn af því sem við getum hannað og smíðað með því hæfileikaríka fólki og þeirri tækni sem við búum yfir innanhúss. Hann lítur frábærlega út og að geta slakað toppnum niður og hlustað á ekkert vélarhljóð er afar spennandi upplifun,“ sagði Thomas Ingenlath, framkvæmdastjóri Polestar.

Innra rými í Polestar O₂

Aksturseiginleikar Polestar O2 eiga að vera líflegir, léttir og veita sjálfstraust. Fyrirsjáanleiki og leikgleði eru kjarnaatriði sem undirbyggja spennandi og skemmtilegan akstur.

„Polestar O2 er okkar sýn á nýja kynslóð fyrir sportbíla. Þessi blanda af himinskautunum og rafdrifnum bíl er lykill af nýrri tilfinningablöndu í bíl. En eins og með alla okkar bíla, þá erum við um svo miklu meira en beinar línur. Það er fyrst þegar þú kemur að beygju og snýrð stýrinu sem gamanið byrjar,“ sagði Maximilian Missoni, yfirhönnuður Pólestar.

Framendinn á Polestar O₂.

Endurunnin efni

Í Polestar 2 er endurunnið pólýester eina efnið sem notað er í alla mjúka fleti í innra rýminu, froða, lím, þrívíddar prjónað efni og óofin plasthúðun.

Afturendinn á Polestar O₂.

Í O2 er kynnt ný aðferð við notkun endurunna efna sem er ætlað að auka nýtingargetu á málmum. Mismunandi týpur af áli eru notaðar í undirvagninn til að skila frábærum aksturseiginleikum.

Polestar stefnir á skráningu í Nasdaq kauphöllina í samstarfi við Gores Guggenheim, Inc á fyrri helmingi ársins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×