Hversu formleg eigum við að vera þennan síðasta dag?
Vita allir að ég er að hætta?
Eða hvað tekur við?
Aðalmálið í þessu er að kveðja í góðu. Sama hvernig starfslokunum bar að.
Því maður veit aldrei hvaða tækifæri geta gefist síðar á lífsleiðinni, svo lengi sem maður heldur öllum dyrum áfram opnum.
Eitt sem mörgum finnst gott að gera, er að senda stuttan tölvupóst á samstarfsfélaga. Bara stutta kveðju um að dagurinn í dag hafi verið síðasti dagurinn, þakka öllum fyrir samstarfið.
Ef það er óvissa um framhaldið og atvinnuleit framundan, er sniðugt að reyna að koma því að til samstarfsfólks að nú taki sá tími við og hér gildir engin feimni. Því atvinnuleit gengur meðal annars út á að nýta tengslanetið sitt og það eru meiri líkur á að fólk geti bent á þig, eða bent þér á eitthvað, ef fólk veit að atvinnuleit er framundan.
Mörgum finnst líka gott að fá einhverjar upplýsingar um það, eða geta haft puttana í því, að semja hvernig out of office tölvupósturinn mun hljóma, eftir að þú ert hætt/ur. Þetta er ágætis atriði að kanna þegar líður að kveðjustund.
Að senda tölvupóst til samstarfsfélaga er ekki eitthvað sem hentar öllum. Og á sumum vinnustöðum er staðið fyrir einhverri kveðju síðasta vinnudaginn. Til dæmis smá kaffisamsæti.
Ef það er einhver samverustund skipulögð eða jafnvel kveðjupartí, er gott að vera búin að fara aðeins yfir það í huganum hvað og hvernig þú vilt koma ákveðnum upplýsingum á framfæri. Og alltaf þannig, að ekki sé að heyra neina beiskju af þinni hálfu að vera að hætta og kveðja, þótt starfslok hafi komið til með uppsögn.
Eitt gott ráð sem nýtist öllum er að vera búin að fara yfir það í huganum, hvaða stundir þér fannst skemmtilegastar eða hvaða minningar standa uppúr. Rifja þær upp með vinnufélögunum og hafa gaman af.
Stundum er síðasti vinnudagurinn kominn til hreinlega vegna þess að þér líkaði ekki starfið eða vinnustaðurinn og sagðir upp. Þegar svo er, þarf samt að muna að eftir situr fólk á vinnustaðnum sem er ánægt og ætlar að vera þar áfram. Þess vegna skiptir miklu máli að forðast alla neikvæðni í tali.
Loks skiptir máli að sýna áhuga á því að vera áfram í sambandi. Því þegar kemur að næsta starfi eða næsta kafla í lífinu, getur vel verið að þetta tengslanet muni nýtast þér vel.