Körfubolti

Harden fer til Philadelphia í skiptum fyrir Simmons

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
James Harden er á leið til Philadelphia 76ers í skiptum fyrir Ben Simmons.
James Harden er á leið til Philadelphia 76ers í skiptum fyrir Ben Simmons. Tim Nwachukwu/Getty Images

Félagsskiptaglugginn í NBA-deildinni lokaði í kvöld, en stærstu skiptin áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum áður en glugginn lokaði.

James Harden er á leið til Philadelphia 76ers fra Brooklyn Nets í skiptum fyrir Ben Simmons, en bæði lið þykja líkleg til afreka í Auturdeild NBA-deildarinnar í körfubolta.

Frá þessu er greint á ESPN, en það var Adrian Wojnarowski sem var fyrstur með fréttirnar.

Harden og Simmons eru ekki þeir einu sem færa sig á milli liðanna, en ásamt Harden fer Paul Millsap yfir til Philadelphia. Brooklyn Nets fær ásamt Simmons þá Seth Curry og Andre Drummond, auk tveggja valrétta í fyrstu umferð nýliðavals NBA-deildarinnar.

Félagsskiptagluggi NBA-deildarinnar lokaði nú klukkan 20:00, en hægt er að lesa um helstu skiptin sem áttu sér stað hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×