Ísey Skyr Bar laut í lægra haldi í deilu um uppskriftir og útlit umbúða og vara Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2021 14:42 Ísbúð Garðabæjar hafnaði að réttir Ísey Skyr Bar væru einstakir á heimsvísu. Einföld leit á netinu leiði annað í ljós. Vísir/Vilhelm Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að útlit umbúða og vara Ísey Skyr Bar skorti nægilegt sérkenni til þess að fyrirtækið gæti notið einkaréttar á því.
Ísey Skyr Bar hafði áður kvartað til Neytendastofu vegna markaðssetningar S.G. Veitinga, sem rekur Ísbúð Garðabæjar, á skálum og drykkjum. Fór Ísey fram á að Ísbúð Garðabæjar yrði meinað að nota þær uppskriftir sem væru „eins og uppskriftir [Ísey] eða [fælu] eingöngu í sér smávægileg frávik frá þeim.“ Í kvörtuninni kom fram að Ísey Skyr Bar hefði varið umtalsverðum fjármunum og vinnu til þróunar veitingastaða sem reknir væru undir vörumerkinu Ísey Skyr Bar bæði á útsölustöðum N1 á höfuðborgarsvæðinu og í verslunum Hagkaups í Skeifunni, Smáralind og Kringlunni á grundvelli ítarlega skilgreindrar hugmyndafræði og umgjarðar. Er þar boðið upp á skálar, boozt drykkir, safar og skot og vildi Ísey meina að þeir booztdrykkir sem Ísbúð Garðabæjar byði upp á væru ýmist bein eftirlíking af réttum Íseyjar eða að veruleg líkindi væru fyrir hendi. „Ætlunin væri augljóslega að skapa sömu hughrif hjá neytendum og nýta þá fjármuni og vinnu sem kærandi hefði varið í þróun á fyrrgreindri hugmyndafræði og umgjörð.“ Vildi Ísey til dæmis meina að booztið „1001 nótt“ hjá Ísey og „Boozt ársins“ Ísbúð Garðabæjar væru nánast eins. Hið sama gilti um „Græna booztið“ hjá Ísey og „Grænn ofurboozt“ hjá Ísbúð Garðabæjar, „Boozt jarðaberja“ hjá Ísey og „Jarðaberjabooztið“ hjá Ísbúð Garðabæjar og að lokum „Fersku mangóboozti“ hjá Ísey og „Sumar booztinu“ hjá Ísbúð Garðabæjar. Einföld leit á netinu neiðir annað í ljós Ísbúð Garðabæjar hafnaði hins vegar í sínu bréfi að réttir Ísey Skyr Bar væru einstakir á heimsvísu. Einföld leit á netinu leiði annað í ljós. Var því hafnað að brotið hafi verið gegn góðum viðskiptaháttum eða að líkt hafi verið eftir vörum eða markaðssetningu Ísey Skyr Bars. „Engin uppskrifta Ísey Skyr Bars sé þannig að einn aðili geti átt lögvarinn einkarétt til þeirra heldur sé þetta mismunandi samsetning vinsælla hráefna. Umbúðirnar séu glær plastílát sem séu fjöldaframleidd og flestir seljendur slíkra vara hér á landi noti. Þá séu vörur S.G. Veitinga skilmerkilega merktar Ísbúð Garðabæjar sem ætti að koma í veg fyrir rugling.“ Skortir nægilegt nýnæmi og sérkenni Á vef Neytendastofu segir að í úrskurði áfrýjunarnefndar sé meðal annars fjallað um að matarrétti Ísey Skyr Bar skorti nægilegt nýnæmi og sérkenni til að njóta réttarverndar sem sjálfstætt hugverk. „Réttir S.G. Veitinga, sem svipi mjög til rétta Ísey Skyr Bars, feli ekki í sér ótilhlýðilegar eftirlíkingar sem brjóti í bága við góða viðskiptahætti. Þá verði því ekki slegið föstu að S.G. Veitingar hafi notfært sér myndir Ísey Skyr Bars við markaðssetningu sína. Við mat á því hvort hætta væri á að neytendur rugluðust á vörum fyrirtækjanna leit áfrýjunarnefndin m.a. til þess að útsölustaðir fyrirtækjanna bæru verulega ólík nöfn og að auðkenni þeirra væru ólík. Þó báðir kalli matarrétti sína líkum nöfnum verði þau að teljast almenn og lýsandi fyrir viðkomandi vörur,“ segir á vef Neytendastofu. Lesa má úrskurð áfrýjunarnefndarinnar hér.
Neytendur Auglýsinga- og markaðsmál Höfundarréttur Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Festi fær að kaupa Lyfju Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum „Rétturinn til viðgerðar“ væntanlegur til landsins Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Pepsíunnandi til margra ára kveður drykkinn eftir breytinguna „Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“ Vísar ásökunum um „vopnaðan frið“ um verðlag á bug Aldrei verið minna af sykri í íslensku Pepsí Landsnet skuldar Landsvirkjun 2,4 milljarða Keypti gallaðan kveikjara og fær 50 þúsund krónur Landsvirkjun vann og neytendur borga brúsann Reykjavík Marketing sektað vegna fullyrðinga um vörur frá Lifewave Lét bóna bílinn, lenti illa í því og fær 1,6 milljónir í bætur Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum Hægir á verðhækkunum matvöru „Gátum ekki setið og beðið endalaust“ Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Sjá meira