Jól

Jóla­molar: Ekkert verra en að vera þunnur á að­fanga­dag

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Fjölmiðlamaðurinn Egill Ploder segist vera mikill jólaunnandi, enda mikill kósýmaður sem kann að meta góðan mat og gjafir.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Ploder segist vera mikill jólaunnandi, enda mikill kósýmaður sem kann að meta góðan mat og gjafir. Instagram/Egill Ploder

Fjölmiðlamaðurinn Egill Ploder segir High School Musical DVD-disk vera eina eftirminnilegustu jólagjöf sem hann hefur fengið, þrátt fyrir að hann hafi fengið margar góðar gjafir í gegnum tíðina. Í ár óskar hann sér hins vegar einna helst ryksuguróbót, enda fátt leiðinlegra en að ryksuga að hans mati.

Jólamolar Vísis munu birtast reglulega fram að jólum. Þar fáum við að kynnast þjóðþekktum einstaklingum í nýju ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólagírinn. Jólamolunum er ekki síður ætlað að koma lesendum Vísis í hið eina sanna jólaskap.

Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?

„Alltaf sem Elf! Jólin eru snilld. Ég er kósýkall. Jólin eru kosý. Mér finnst gott að borða. Það er mikið borðað á jólunum. Mér finnst gaman að gefa og fá pakka. Maður gefur og fær pakka á jólunum. Er mikill kertamaður. Mikið kveikt í kertum á jólunum. Mér finnst gaman að spila. Mikið spilað á jólunum. Skilurðu?“

Hver er þín uppáhalds jólaminning?

„Það var líklegast í kringum 2005. Fyrsta og eina skiptið sem ég hef fengið möndluna í hádegisgrautnum.“

Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?

„Ég hef fengið margar hörku jólagjafir! Ég fékk samt einu sinni High School Musical 2 á DVD. Það er rosaleg mynd.“

Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið?

„Ég fékk einu sinni notaða míní-rúllettu. Það var samt alveg stemning.“

Hver er uppáhalds jólahefðin þín?

„Jólagjafarúnturinn á aðfangadegi sem ég og bróðir minn tökum saman!“

Hvað er uppáhalds jólalagið þitt?

„Fa La La - Justin Bieber og Boyz II Men (Acappella)“

Hver er þín uppáhalds jólamynd?

„Ég er mikið fyrir það að taka kvikmyndamaraþon í desember. Horfði á Die Hard myndirnar í fyrsta skipti í fyrra. Það var gott dæmi. Er að klára Lord Of The Rings og Hobbit núna. Engin ein sérstök sem er svona alveg uppáhalds jólamynd!“

Hvað borðar þú á aðfangadag?

„Það er rækjuréttur í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og svo narta ég aftur í hrygginn í eftirrétt.“

Hvað óskar þú þér í jólagjöf í ár?

„Ég væri klár í róbot ryksugu! Hversu leiðinlegt er að ryksuga?“

Hvað er það sem hringir inn jólin fyrir þér?

„Klukkurnar í útvarpinu kl 18:00.“

Er eitthvað skemmtilegt á döfinni hjá þér núna fyrir jólin?

„22. desember er afmælisdagur bróður míns. Fjölskyldan gerir sér alltaf góðan og glaðan dag úr því. Það er alltaf mjög skemmtilegt!“

„Gleðileg jól! Passið ykkur að fá ykkur ekki of mikið í glas á Þorláksmessu. Það er ekkert verra en að vera þunn/ur á aðfangadag.“

Tengdar fréttir

Jóla­molar: „Jólin eru há­tíð, ekki árs­tíð!“

Brynja Dan, eigandi Extraloppunnar og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur fengið margar skemmtilegar jólagjafir í gegnum tíðina. Henni er minnisstætt vandræðalegt atvik frá því að hún var unglingur og opnaði nærfatasett fyrir framan alla fjölskylduna eitt aðfangadagskvöldið.

Jóla­molar: Setur leður­hanska á óska­listann á hverju ári

Rapparinn Emmsjé Gauti varð meira jólabarn eftir að hann eignaðist börn en hann hefur skapað sínar eigin jólahefðir með fjölskyldunni. Ein af hefðum Gauta eru jólatónleikarnir Jülevenner sem hafa skipað sér fastan sess í jólahaldi margra. Þar fær hann til sín frábæra gesti en í ár það þau Aron Can, Salka Sól, Steindi JR, Selma Björns og Herra Hnetusmjör sem munu hringja inn jólin með Gauta.

Jóla­­­molar: Pizza­ofn efstur á ó­ska­listanum

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Birgitta Líf Björnsdóttir ætlar að verja jólunum erlendis í sólinni með fjölskyldu sinni. Hún segir jólin fyrst og fremst snúast um samverustundir með fjölskyldunni og að þá skipti staðsetningin litlu máli.








×