Telja ekkert gefa grænt ljós á að ríkjaheiti njóti verndar frá vörumerkjaskráningu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. nóvember 2021 07:00 Ísland og breska verslunarkeðjan Iceland hafa átt í deilum um notkun á orðinu ICELAND. Vísir Breska verslunarkeðjan Iceland Foods telur að markmið íslenskra stjórnvalda í deilunni um yfirráð yfir vörumerkinu Iceland sé að koma á fót reglu þess efnis að undir engum kringumstæðum verði hægt að skrá ríkjaheiti sem vörumerki. Iceland Foods telur að þetta eigi sér enga stoð í reglugerðum eða alþjóðasáttmálum.
Líkt og greint hefur verið frá á Vísi að undanförnu er áralangri deilu Íslands og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um vörumerkið Iceland ekki lokið. Ísland hafði betur gegn Iceland Foods fyrir tveimur árum síðan þegar skráning Iceland Foods á vörumerkinu var úrskurðuð ógild. Verslunarkeðjan áfrýjaði þeim úrskurði en nánar má lesa um forsögu málsins hér. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins er nú með með málið til meðferðar, en Íslandi hefur meðal annars borist stuðningur frá Sviss, sem styður Ísland í málinu gegn Iceland Foods. Áfrýjunarnefndin þarf meðal annars að taka afstöðu til fjórtán grundvallaratriða sem tengjast skráningu ríkjaheitis sem vörumerkis. Gafst málsaðilum kostur á senda inn eigin sjónarmið vegna málsins. Vísa til þess að árleg velta sé helmingur af útflutningi Íslands til EES Í september skilaði breska lögfræðistofan Mischon de Reya inn greinargerð fyrir hönd Iceland Foods. Greinargerðin er yfirgripsmikil þar sem farið er yfir fjölmarga anga málsins. Meðal annars er vísað í að árleg velta vörumerkja Iceland Foods sé um það bil helmingur af virði alls útflutnings frá Íslandi til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins, yfir sama tímabil. Þá kemur fram sú skoðun Iceland Foods að markmið íslenskra yfirvalda í málinu sé í raun að koma á fót fordæmi þess efnis að undir engum kringumstæðum megi skrá ríkjaheiti sem vörumerki. „Það er augljóst að ætlun Umsækjenda um niðurfellingu er að koma á fót eins konar reglu um að ríkjaheiti séu sérstakur flokkur merkja sem skuli alltaf vera algjörlega óskráningarhæf sem vörumerki í hvaða tilgangi sem er,“ segir í greinargerð Iceland Foods. Vísa í orð Guðlaugs Þórs Er þar meðal annars vísað til orða Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra sem hann lét falla eftir að Hugverkastofa Evrópusambandsins ógilti vörumerkja skráningu Iceland Foods á vörumerkinu Iceland. Guðlaugur Þór Þórðarson er utanríkisráðherra.Vísir/Vilhelm „Ég fagna þessari niðurstöðu þótt hún komi mér ekki alls kostar á óvart enda gengur það gegn almennri skynsemi að erlent fyrirtæki geti slegið eign sinni á nafn fullvalda ríkis eins og þarna hefur verið gert,“ sagði Guðlaugur Þór við það tækifæri. Í greinargerðinni segir að þessi krafa sé að mati Iceland Foods óvenjuleg, engin grundvöllur sé fyrir því að ríkjaheiti geti talist óskráanleg vörumerki miðað við þær reglugerðir og alþjóðasáttmála sem gildi um skráningu vörumerkja. Ekki er ljóst hvenær niðurstöðu fjölskipuðu áfrýjunarnefndarinnar er að vænta. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er það háð ákveðinni óvissu þó ekki sé reiknað með niðurstöðu fyrr en á næsta ári eða jafn vel því þarnæsta.
Utanríkismál Deila Íslands og Iceland Foods Höfundarréttur Tengdar fréttir Íslandi barst liðsauki frá Sviss í deilunni gegn Iceland Foods Svissnesk samtök sem hafa það hlutverk að vernda orðspor þarlendrar framleiðslu hafa komið Íslandi til stuðnings í deilunni við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods. Framkvæmdastjóri samtakanna telur líklegt að deilan muni á endanum fara fyrir Evrópudómstólinn. 18. nóvember 2021 09:00 Er hægt að eignast vörumerkið Jamaíka og selja ís undir því nafni? Eitt af þeim álitaefnum sem fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) þarf að taka afstöðu til í deilu Íslands og verslunarkeðjunnar Iceland Foods er hvort að ásættanlegt sé að selja banana undir nafni Íslands eða ís undir nafni Jamaíku. 17. nóvember 2021 11:28 Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019. 2. nóvember 2021 09:00 Mest lesið Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent Bein útsending: Er gervigreindin alvöru tækifæri fyrir Ísland? Viðskipti innlent Óvæntur atvinnumissir: Óttinn verstur en mörg góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Davíð Ernir til liðs við Athygli Netvís tekur við af SAFT Bein útsending: Er gervigreindin alvöru tækifæri fyrir Ísland? Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Eiríkur Orri til Ofar Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi „Það verður andskoti flókið“ Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Ásgeir og Darri til Landslaga Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Sjá meira
Íslandi barst liðsauki frá Sviss í deilunni gegn Iceland Foods Svissnesk samtök sem hafa það hlutverk að vernda orðspor þarlendrar framleiðslu hafa komið Íslandi til stuðnings í deilunni við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods. Framkvæmdastjóri samtakanna telur líklegt að deilan muni á endanum fara fyrir Evrópudómstólinn. 18. nóvember 2021 09:00
Er hægt að eignast vörumerkið Jamaíka og selja ís undir því nafni? Eitt af þeim álitaefnum sem fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) þarf að taka afstöðu til í deilu Íslands og verslunarkeðjunnar Iceland Foods er hvort að ásættanlegt sé að selja banana undir nafni Íslands eða ís undir nafni Jamaíku. 17. nóvember 2021 11:28
Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019. 2. nóvember 2021 09:00
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent