Neytendur

At­lants­olíu bannað að full­yrða um „chea­pest gas stop“

Atli Ísleifsson skrifar
Heildarniðurstaða Neytendastofu var að fullyrðingar Atlantsolíu væru villandi.
Heildarniðurstaða Neytendastofu var að fullyrðingar Atlantsolíu væru villandi. Getty/Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur bannað tvær fullyrðingar sem notaðar hafa verið í auglýsingum Atlantsolíu þar sem þær eru taldar vera villandi. Fullyrðingarnar sem um ræðir eru annars vegar „cheapest gas stop“ og hins vegar „Lægsta verðið er hjá Atlantsolíu Kaplakrika og Sprengisandi“.

Í ákvörðun Neytendastofu segir að ábending um fullyrðingarnar hafi borist frá neytendum. Í bréfi stofnunarinnar til Atlantsolíu í ágúst síðastliðinn hafi komið fram að félagið hafi auglýst á flettiskilti við Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík þar sem fram kæmi textinn „cheapest gas stop.“ Hin fullyrðingin hafi birst á heimasíðu.

Auglýsing Atlantsolíu fór framhjá Atlantsolíu

Í svörum Atlantsolíu um „cheapest gas stop“ kom fram að félaginu hafi verið ókunnugt um birtingartíma fullyrðingarinnar og því mögulega með lægsta verðið á þeim tíma. 

„Í öðru lagi hafi auglýsingin, sem hafði verið unnin af auglýsingastofu, farið framhjá félaginu. Þá geti verið, að í vinnu auglýsingastofunnar, hafi þýðing skolast til og gleymst að vísa til lággjaldastöðva félagsins. Í þriðja lagi hafi félagið ekki haft ásetning til að vera með rangar staðhæfingar og tekið auglýsinguna niður þegar erindi Neytendastofu barst.

Varðandi fullyrðingu um „Lægsta verðið er hjá Atlantsolíu Kaplakrika og Sprengisandi“ tiltók félagið þrjú atriði. Í fyrsta lagi að fullyrðingin hafi aðeins birst á heimasíðu félagsins. Í öðru lagi að félagið hafi talið það augljóst af auglýsingunni að Atlantsolía byði sitt eigið lægsta verð á þessum tilteknu staðsetningum. Í þriðja og seinasta lagi hafi textinn verið fjarlægður og enginn ásetningur hafi verið til staðar um að vera með rangar eða villandi fullyrðingar,“ segir í ákvörðuninni.

Villandi fullyrðingar

Neytendastofa taldi fullyrðingarnar villandi og grundvallaðist sú niðurstaða á tveimur sjónarmiðum. 

„Í fyrsta lagi að ekki voru lögð fram gögn sem sönnuðu fullyrðinguna „cheapest gas stop.“ Í öðru lagi að ekki var fallist á að augljóst væri að með fullyrðingunni „Lægsta verðið er hjá Atlantsolíu Kaplakrika og Sprengisandi“ væri einungis átt við eigin verð Atlantsolíu.“

Heildarniðurstaða Neytendastofu var því að fullyrðingarnar væru villandi, en félagið brást strax við bréfum Neytendastofu og tók fullyrðingarnar úr birtingu áður en ákvörðun var tekin í málinu. Því taldi Neytendastofa ekki tilefni til frekari aðgerða.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×