Fær ekki vaskinn endurgreiddan vegna vinnu við upphækkun jeppa Atli Ísleifsson skrifar 11. október 2021 16:13 Nefndin telur því ekki vera forsendur til að skýra heimildina svo rúmt að hún taki til vinnu við slíkar breytingar á fólksbílum. Myndin er úr safni. Getty Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við upphækkun jeppa og koma honum á stærri dekk. Ekki voru taldar forsendur til að skýra endurgreiðsluheimild virðisaukaskattslaga svo rúmt, að hún tæki til slíkra breytinga.
Kærandi reyndi að fá virðisaukaskattinn af vinnu fyrir breytingar á jeppanum endurgreiddan í nafni breytinga á virðisaukaskattslögum vegna faraldurs kórónuveirunnar sem fól í sér tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á árinu 2021. Náðu breytingarnar meðal annars í sér til vinnu vegna bílaviðgerðar, bílamálningar eða bílaréttingar fólksbifreiða. Áður hafði embætti ríkisskattstjóra hafnað beiðninni og kærði maðurinn ákvörðunina til yfirskattanefndar og til að fá henni hnekkt. Sölureikningurinn var gefinn út í mars 2021 og nam alls 2.107.000 krónur, en þar af nam vinnuliðurinn 1.001.000 krónur. „Miðað við lýsingu á sölureikningnum var um að ræða vinnu „við 35“ breytingu, brettakanta, úrklippu, loftdælu og dráttarbeisli o.fl.“, eins og þar segir. Í beinu framhaldi af kaupum á nýjum jeppa Í umsögn ríkisskattstjóra í málinu er dregin sú ályktun að um hafi verið að ræða breytingar á jeppanum í beinu framhaldi af kaupum kæranda á honum nýjum, en kærandi hafi keypt bílinn í febrúar 2021 eða sama dag og hún var nýskráð miðað við upplýsingar í ökutækjaskrá. Ekki komu fram neinar athugasemdir af því tilefni af hálfu mannsins og tekur nefndin því undir það með ríkisskattstjóra að hafna beri beiðninni um endurgreiðslu. Sömuleiðis hafi orð nefndarálits efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis með frumvarpi til laganna mælt þessari túlkun mannsins. Nefndin telur því ekki vera forsendur til að skýra heimildina svo rúmt að hún taki til vinnu við slíkar breytingar á fólksbílum sem um ræðir í tilviki kæranda sem telja verður að miði fyrst og fremst að því að breyta notkunareiginleikum viðkomandi bíls með upphækkun hennar og stærri dekkjum. Kröfum hans hafi því verið hafnað.
Bílar Skattar og tollar Neytendur Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira