Erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur hag­fræði­verð­laun sænska seðla­bankans?

Atli Ísleifsson skrifar
Hagfræðiverðlaunin hafa hafa verið veitt frá því 1969.
Hagfræðiverðlaunin hafa hafa verið veitt frá því 1969. Getty/picture alliance

Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45.

Verðlaunin teljast strangt til tekið ekki til Nóbelsverðlauna enda eru verðlaunin ekki komin frá Alfred Nobel sjálfum. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1969 og er almennt talað um þau sem hluta af Nóbelsverðlaununum.

Fréttamannafundurinn hefst klukkan 9:45 og hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér að neðan.

Bandarísku hagfræðingarnir Paul R. Milgrom og Robert B. Wilson deildu með sér Nóbelsverðlaununum í hagfræði á síðasta ári. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar og þróun á uppboðskenningunni svokölluðu og hvernig uppboð í hverskyns mynd hafa áhrif á daglegt líf almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×