Svikamyllan í kringum gengið og gjaldeyrisvarasjóðinn Ólafur Örn Jónsson skrifar 24. september 2021 08:45 Handstýring á gengi krónunnar undanfarin ár er þófnaður frá Lífeyrisþegum um hábjartan dag. Í fyrstalagi þá byggja þjóðir ekki gjaldeyrisvarasjóði með þessum hætti. Draga fé útúr hagkerfinu sem er og þarf að vaxa til að endurheimta skiptinguna í þjóðfélaginu sem var fyrir hrun krónunnar. Þjóðir geta notað tekjur af sameiginlegum auðlindum og sölu á eignum þjóðarbúsins til nokkurra ára til að byggja gjaldeyrisvarasjóði. Það sem gert var hérna var að óopinber dr í hagfræði sem unnið hafði í áratugi að „verkefnum“ fyrir útgerðamenn inní HÍ er ráðinn af fjármálaráðherra sem er formaður flokks útgerðarmanna inní fjármálaráðuneytið til að finna leiðir til að STOPPA ris krónunnar við aukinn hagvöxt af stór auknum tekjum þjóðarinnar sem farnar voru að nálgast þær mestu á mannsbarn í heimi. Ekki veit ég hvaðan Ragnar Árnason fékk þessa fordæmalausu hugmynd að FALSA gengi krónunnar með því að kaupa upp gjaldeyrir en hún virkaði vel fyrir útgerðamenn eftir að búið var að reka og síðan endur ráða Má Seðlabankastjóra og þvinga hann til að framkvæma þennan þjófnað frá samfélaginu, launafólki og sérstaklega okkur lífeyrisþegum sem biðum varanlegan skaða af þessu. Með þessu var kaupmáttur launa lækkaður verulega og verðbólgan gerð varanleg og óviðráðanleg. Þarna var fórnað væntanlegu góðæri til lands og sjávar fyrir óstjórnlega ÓÁUNNAR ofur tekjur stór útgerðanna á kostnað lífeyrisþega og samfélagsins alls. Þetta líkist engu örðu en skipulögðu glæpamáli sem færði útgerðunum þúsundir milljóna og ætti að rannsaka sem slíkt. Síðan núna heyrum við stjórnmálamenn sem þögðu á meðan þessi viðbjóður stóð sem hæst tala um þennan gjaldeyrisvarasjóð sem er stolið af Lífeyris og launþegum eins og þetta sé eign þjóðarinnar. Ef þessi sjóður á að vera eign þjóðarinnar verða þeir sem högnuðust á þessari svikamyllu að borga milljarðana sem stolið var af okkur til baka. Vona að fólk skilji hvað ég er að upplýsa hérna og leggist á árar með mér að fá þetta leiðrétt og okkur bættur sá skaði sem þetta skítaplott olli. Svona svik er ekki hægt að framkvæma nema meintur þjófur eigi ekki bara ríkisstjórnina heldur líka dómskerfið. Höfundur er heldriborgari, fyrrverandi sjómaður og aflaskipstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Handstýring á gengi krónunnar undanfarin ár er þófnaður frá Lífeyrisþegum um hábjartan dag. Í fyrstalagi þá byggja þjóðir ekki gjaldeyrisvarasjóði með þessum hætti. Draga fé útúr hagkerfinu sem er og þarf að vaxa til að endurheimta skiptinguna í þjóðfélaginu sem var fyrir hrun krónunnar. Þjóðir geta notað tekjur af sameiginlegum auðlindum og sölu á eignum þjóðarbúsins til nokkurra ára til að byggja gjaldeyrisvarasjóði. Það sem gert var hérna var að óopinber dr í hagfræði sem unnið hafði í áratugi að „verkefnum“ fyrir útgerðamenn inní HÍ er ráðinn af fjármálaráðherra sem er formaður flokks útgerðarmanna inní fjármálaráðuneytið til að finna leiðir til að STOPPA ris krónunnar við aukinn hagvöxt af stór auknum tekjum þjóðarinnar sem farnar voru að nálgast þær mestu á mannsbarn í heimi. Ekki veit ég hvaðan Ragnar Árnason fékk þessa fordæmalausu hugmynd að FALSA gengi krónunnar með því að kaupa upp gjaldeyrir en hún virkaði vel fyrir útgerðamenn eftir að búið var að reka og síðan endur ráða Má Seðlabankastjóra og þvinga hann til að framkvæma þennan þjófnað frá samfélaginu, launafólki og sérstaklega okkur lífeyrisþegum sem biðum varanlegan skaða af þessu. Með þessu var kaupmáttur launa lækkaður verulega og verðbólgan gerð varanleg og óviðráðanleg. Þarna var fórnað væntanlegu góðæri til lands og sjávar fyrir óstjórnlega ÓÁUNNAR ofur tekjur stór útgerðanna á kostnað lífeyrisþega og samfélagsins alls. Þetta líkist engu örðu en skipulögðu glæpamáli sem færði útgerðunum þúsundir milljóna og ætti að rannsaka sem slíkt. Síðan núna heyrum við stjórnmálamenn sem þögðu á meðan þessi viðbjóður stóð sem hæst tala um þennan gjaldeyrisvarasjóð sem er stolið af Lífeyris og launþegum eins og þetta sé eign þjóðarinnar. Ef þessi sjóður á að vera eign þjóðarinnar verða þeir sem högnuðust á þessari svikamyllu að borga milljarðana sem stolið var af okkur til baka. Vona að fólk skilji hvað ég er að upplýsa hérna og leggist á árar með mér að fá þetta leiðrétt og okkur bættur sá skaði sem þetta skítaplott olli. Svona svik er ekki hægt að framkvæma nema meintur þjófur eigi ekki bara ríkisstjórnina heldur líka dómskerfið. Höfundur er heldriborgari, fyrrverandi sjómaður og aflaskipstjóri.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar