Makamál

Stefnumótaforrit hafi ekki góð áhrif á líðan fólks

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Aðeins 18% lesenda Vísis segja stefnumótaöpp hafa jákvæð áhrif á líðan sína í nýrri könnun Makamála. 
Aðeins 18% lesenda Vísis segja stefnumótaöpp hafa jákvæð áhrif á líðan sína í nýrri könnun Makamála.  Getty

Roði í kinnum, stjörnur í augum, blik í auga, krúttlegt feimnisbros og koss.Hvað sérðu fyrir þér?

Einhvers konar fyrstu kynni koma upp í hugann, ekki satt? 

Fyrir ekki svo mörgum árum væri enginn vafi á því að hér færi einhvers konar lýsing á því þegar fólk er að heillast augliti til auglitis, jafnvel á stefnumóti. 

En í dag er líklegra að þessi lýsing ætti við fyrstu kynni, á einhvers konar rafrænu formi. Samfélagsmiðlum eða stefnumótaöppum.

Finnum réttu myndirnar í stað þess að skreyta fjaðrirnar

Flestir sem eru einhleypir í dag hafa einhverja reynslu af fyrstu kynnum, daðri og stefnumótasamskiptum á rafrænu formi.

Notkun stefnumótaappa færist í aukana með hverju árinu og alltaf bætast ný öpp við flóruna.

Þróunin hefur verið hröð síðustu ár og þarf ekki að horfa lengra til baka en fimmtán til tuttugu ár, þegar fólk þurfti raunverulega að hafa fyrir því að fara út og skreyta fjaðrir sínar til þess að ná athygli einhvers sem vakti áhuga. 

Í dag eyðum við þessum tíma í að velja réttu myndirnar, opna símann og svæpa. 

Í síðustu viku birtu Makamál pistil þar sem því var velt upp hvernig áhrif þessi hraða þróun, frá mannlegum samskiptum yfir í rafræn, hefur haft á stefnumótalífið, leitina að ástinni og á líðan fólks.

Tengsl milli noktunar og félagskvíða

Fólk á samskipti við fleiri aðila en ella með notkun stefnumótaappa og geta samskiptin oft á tíðum verið vélrænni, styttri og endast jafnvel skemur.

Einhverjir hafa þó fundið ástina í gegnum stefnumótaforrit og má svo sannarlega segja að markaðurinn hafi stækkað með tilkomu þeirra. Kostirnir eru vafalaust margir.

Erlendar rannsóknir hafa þó sýnt jákvæðna fylgni á milli notkunar stefnumótaforrita og aukins þunglyndis einkenna og félagskvíða. Það er því ljóst að áhrifin eru ekki alltaf góð.

Makamál spurðu lesendur Vísis hvernig áhrif stefnumótaöpp hafa á líðan þeirra og var greinilegt að hlutfallslega eru þau sem upplifa góð áhrif á líðan sína í miklum minnihluta eða um 18%


Niðurstöður*

Mjög góð áhrif - 5%

Frekar góð áhrif - 13%

Engin áhrif - 33%

Frekar slæm áhrif - 39%

Mjög slæm áhrif - 10%


Gæti mögulega verið að þetta sé orðið of auðvelt? Leitin að ástinni, skotinu eða fiðringnum. 

Það er ákveðin spenna sem fylgir því að vita ekki alveg, þurfa að bíða eftir því að einhver gefi þér auga, hringi eða labbi upp að þér og heilsi. 

Dreyma um samskiptin sem gætu orðið, án þess að vita að hinn aðilinn svæpaði ekki til hægri, eða „seenaði“ þig. 

Ætli það gæti verið að þessar tilfinningar, spennan, fiðringurinn, eftirvæntingin, sem eru nú á undanhaldi, geri það að verkum að leitin sé farin að hafa neikvæðari áhrif en jákvæð? 

Við séum að fá fleiri hafnanir og styttri og innihaldslausari samskipti í skiptum fyrir greiðari aðgang að stærri stefnumótamarkaði?


Ertu búin(n) að svara nýjustu Spurningu vikunnar? 

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Ætlast til að börn fræði sig sjálf um kynþroska

Hvort sem það eru blæðingar, forhúðarvandamál eða hugleiðingar um kynhneigð er mikilvægt að foreldrar barna á kynþroskaskeiðinu séu meðvitum um hvað börn þeirra eru að ganga í gegnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×