Bílar

Askja og bílaframleiðandinn smart hefja samstarf

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Smart Concept #1.
Smart Concept #1.

Á IAA Mobility 2021 bílasýningunni í Munich, frumsýndi smart Concept #1 rafbílinn en um er að ræða rafmagnsbíl í flokki borgarjepplinga. Bíllinn sem er fjórhjóladrifinn er hannaður af Mercedes-Benz og framleiddur í nýrri verksmiðju smart í Kína.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju.

Concept #1 hefur vakið mikla athygli á sýningunni og var samningur Öskju og smart undirritaður á fyrsta degi sýningarinnar sem stendur yfir til 12. september. Bifreiðin sem kynnt var í Munich er nálægt endanlegri framleiðsluútfærslu þó svo að um hugmyndabíl sé að ræða.

Margir kannast við vörumerkið smart en fyrstu smart bílarnir komu á markaðinn í Evrópu árið 1997. Nafnið smart varð til í samstarfi úraframleiðandans SWATCH og Mercedes-Benz og stendur fyrir Swatch Mercedes ART.

Smart Concept #1.

Í lok árs 2019 var það tilkynnt að Mercedes-Benz og Geely einn stærsti bílaframleiðandi Kína myndu hefja samstarf í þróun og framleiðslu smart. Félögin eiga sitthvor 50% hlutdeildina í fyrirtækinu og markmiðið er að ná fram því besta frá hvorum heimi. Þannig leggur Mercedes-Benz til hönnun að innan og utan en Geely leggur til framleiðsluþekkingu og verksmiðjur.

Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, með skófluna á lofti þegar 15 starfsmenn Öskju tóku fyrstu skóflustunguna að nýja Kia húsinu, sem nú hýsir Kia umboðið.

„Við hjá Öskju höfum unnið að þessu í þó nokkurn tíma og núna á þessum tímapunkti þegar samstarf Mercedes-Benz og Geely er að hefjast lá það fyrir að þetta væri rétti tíminn. Smart var fyrsti framleiðandi heims sem hættir alfarið framleiðslu hefðbundinna jarðefnaeldsneytisbíla og skipti alfarið yfir í rafbíla. Við munum frá árinu 2023 sjá nokkra nýja smart bíla koma á markaðinn og þeir eru stærri en við höfum áður séð. Okkur finnst því Smart vera fullkomin vara fyrir Ísland. Rafknúinn bílaframleiðandi í hæsta gæðaflokki, sem býður upp á fjórhjóladrifinn borgarjeppling á góðu verði og með drægni sem telst til fyrirmyndar í þessum stærðarflokki auk þess að tengjanleiki við snjalltæki verður eins og best verður á kosið,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

Smart Concept #1.

Forstjóri smart í Evrópu, Dirk Adelmann skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd fyrirtækisins. „Askja hefur verið frábær samstarfsaðili Mercedes-Benz í 18 ár á Íslandi. Það lá því strax fyrir að tilnefna Öskju sem sölu- og þjónustuaðila á Íslandi. Við erum full tilhlökkunar að fá að kynna smart fyrir Íslendingum og erum viss um að Ísland sem er meðal þeirra landa í Evrópu sem eru lengst komnir í rafbílavæðingunni mun taka okkur vel. Landið leggur mikla áherslu á sjálfbæra orkuframleiðslu og rafbílavæðing mun flýta þeirri þróun enn frekar.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×