Makamál

Hittu aftur og aftur í mark á fyrsta stefnumótinu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Erla Ruth Möller og Óli Jón Gunnarsson voru eitt þeirra tveggja para sem leidd voru saman á blint stefnumót í þættinum Fyrsta blikið á Stöð 2. 
Erla Ruth Möller og Óli Jón Gunnarsson voru eitt þeirra tveggja para sem leidd voru saman á blint stefnumót í þættinum Fyrsta blikið á Stöð 2.  Skjáskot

Óli Jón Gunnarson var ekki lengi að svara því hvernig útliti hann heillast af í öðrum þætti Fyrsta bliksins á Stöð 2. 

Óli Jón og Erla Ruth voru eitt tveggja para sem leidd voru saman á blint stefnumót í raunveruleika- og stefnumótaþættinum Fyrsta blikið síðasta föstudagskvöld. 

Ásamt því að vera jafn gömul og bæði að norðan þá áttu þau Óli og Erla það einnig sameiginlegt að vera...

Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)

Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þáttinn en hafa enn ekki séð hann þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.

...bæði menntaðir leikarar, söngvarar og að sögn aðstandenda miklir tölvunördar. 

Hversu fullkomið? 

Í sófaviðtalinu fyrir stefnumótið var Óli Jón meðal annars beðinn um að lýsa því útliti sem hann heillast að en eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan var bróðir hans, Ottó, með smekk bróður síns á konum alveg á hreinu. 

Klippa: Fyrsta blikið - Rauðhærða ofurhetjan

Fyrsta stefnumótið og það fyrir framan myndavélar

Óli Jón segist sjálfur litla reynslu hafa af stefnumótaheiminum og var stefnumótið við hana Erlu því fyrsta eiginlega stefnumótið hans, og það í sjónvarpinu. Bravó Óli!

Það var því eðlilega smá fiðringur og stress í okkar fólki sem hvarf þó eins og dögg fyrir sólu þegar þau hittust og byrjuðu að tala saman. 

Stundum á fólk erfitt með að byrja að tala saman og finna umræðuefni svo stundum, bara stundum...

gerist þetta. 

Klippa: Fyrsta blikið - Þegar allt er að smella

Þó svo að ekki hafi kviknað á rómantískum blossum hjá Óla og Erlu eru þau þó orðnir rafrænir vinir á samfélagsmiðlum og segjast þau bæði hafa notið kvöldsins og verið hæst ánægð með félagsskapinn. 

Ætli fólk geti stundum verið of líkt? 

Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru þau bæði einhleyp og í leit að ævintýrum. 


Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×