Bílar

Skoda Enyaq iV - rafjepplingur fyrir fjölskyldur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Skoda Enyaq og vindmyllur.
Skoda Enyaq og vindmyllur.

Skoda Enyaq iV er fimm manna rafjepplingur sem er ætlað að virka fyrir fjölskyldufólk og vera umhverfisvænn á meðan. Bíllinn er smekklega hannaður og vel samsettur, auk þess sem hann er rúmgóður.

Útlit

Bíllinn er smíðaður á sama grunni og Volkswagen ID.4 og Audi Q4 e-tron. Að mati blaðamanns er Enyaq fallegri en ID.4, þó ID.4 sé ögn þéttari bíll. Hann er snyrtilegur og hefur sver sig í ættina.

Margir rafbílar eru hannaðir til að vera útlitslega talsvert ólíkir brunahreyfilsbílum, af því er virðist bara af því bara. Enyaq er ekki einn af þeim bílum, sem er vel.

Aksturseiginleikar

Bíllinn er góður í akstri og með öflugt upptak., eins og rafbíla er von og vísa. Það má eiginlega segja að sé þemað í Skoda Enyaq, það kemur ekkert á óvart. Nema beygjuradíusinn, hann er eiginlega alveg fáránlega suttur.

Stuttur beygjuradíus helgast af því að bíllinn er rafbíll og sá sem ekið var í reynsluakstrinum var 60 útgáfan, minni rafhlaðan og afturhjóladrifinn. Það er því raunar enginn drifbúnaður að framan og því er hægt að leggja afar vel á bíllinn.

Innra rými Enyaq er að hluta úr endurunnum efnum.

Notagildi og innra rými

Reynsluakstursbíllinn var af ódýrustu gerð en hann var þó ágætlega búinn, hiti í sætum, 230V tengi og margt fleira.

Það er gott að sitja í bílnum, honum var ekið þónokkuð í einni beit í reynsluakstrinum og alls ekki yfir neinu að kvarta þar.

Skottið er nokkuð gott og sérstaklega miðað við aðra bíla í þessum flokki. Það helgast af því að afturrúðan er ekki látin halla lítið.

Skottið á Enyaq.

Drægni og hleðsla

Uppgefin drægni er frá 412 km í 60 bílnum og upp í 534 km í afturhjóladrifnum 80 bíl. Ekkert við reynsluaksturinn gaf tilefni til efasemda um þessar tölur.

Enyaq er um sjö og hálfa klukkustund að hlaða sig í góðri heimahleðslustöð. Minni rafhlaðan getur tekið 7,2 kW inn á sig en stærri 11 kW. Þeir eru báðir 38 mínútur upp í 80% í hraðhleðslustöð, þá getur bílinn tekið inn á sig 100 kW og 125 kW með stóru rafhlöðunni.

Skoda Enyaq í hleðslu.

Verð og samantekt

Bíllinn kostar frá 5.790.000kr. í þeirri útgáfu sem var reynsluekið. Dýrasta útgáfan er á 8.290.000kr. Ódýrasta fjórhjóladrifs útgáfan er á 6.790.000kr.

Enyaq er góður fjölskyldubíll og var góður ferðabíll. Það er gaman að sjá að rafjepplingar eru að verða raunverulegur kostur fyrir fjölskyldufólk. Enyaq er klárt dæmi um það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×