Bílar

Volkswagen e-Up - Ekki snobbað fyrir einhverjum óþarfa

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Volkswagen e-Up!
Volkswagen e-Up!

Volkwagen e-Up er fimm dyra fjögurra manna rafborgarbíll sem er alveg eins og hefðbundinn Up, nema rafdrifinn. Það er meira að segja raunverulegur lykill sem þarf að snúa í einhverskonar sviss til að „setja í gang“ eða virkja bílinn. Hann er hressilega einfaldur og aðgengilegur.

Útlit

Bíllinn er frekar kassalaga. Það virðist koma til af því hann á að bjóða upp á frekar upprétta sætisstöðu og það þarf að reikna inn í dæmið nægjanlegt höfuðpláss fyrir sem flesta og svo er hann hannaður til að vera smábíll. Þar af leiðir er að hann er ekki langur og verður því fremur kassalaga.

Hann hefur sígilt Volkswagen útlit, smekklegt, vandað og ekkert sem gæti verið fráhrindandi fyrir neinn. Ekkert að því, nema hvað að það eru engar áhættur teknar, allt spilað frekar öruggt.

Aksturseiginleikar

Bíllinn er léttur af rafbíl að vera og snöggur, upp í svona 60-70 km/klst. Ekki það að hann sé hægur frá 70-90 km/klst, hann er bara ekki eins snöggur, honum var að sjálfsögðu ekki ekið hraðar í reynsluakstrinum.

Hann er lipur í akstri og ljúfur, það er ofboðslega gott að skjótast á honum. Amstur dagsins verður til þess að maður glotti yfir getu bílsins til að stinga sér, skjóta sér og sniglast eitthvað. Svo er ekki slæmt að leggja honum.

Innra rými í e-Up. Skjárinn beint fyrir neðan baksýnisspegilinn er snjallsími, festur í snjallsímafestingu bílsins.

Notagildi

Bíllinn er lítill, honum var ætlað að vera lítill. Hann er þar af leiðandi ekki með stærsta skott sem finnst, fótaplássið er fínt miðað við stærðarflokk.

Hann er auðvitað fjögurra manna sem er ákveðið strik í notagildis reikninginn. En hann er virkilega góður í annað, eins og að snattast. Þetta er ekki flutningabíll.

Innra rými

Áður hefur verið fjallað um að bíllinn sé hressilega einfaldur. Skjárinn er lítill og er ekki snertiskjár. Í ofanálag er lykill sem þarf að snúa eins og í sprengihreyfilsbílum framleiddum snemma á síðasta áratug.

Innra rýmið er smekklegt og sama má segja um það og ytra byrði, hann er stílhreinn og engir sénsar teknir. E-Up veitir ekkert af armpúða. Hann er með haldara fyrir snjallsíma, svo að einhverju leyti má segja að hann geti verið með snertiskjá.

Volkswagen e-Up stungið í hleðslu.

Drægni og hleðsla

Rafhlöðurnar í e-Up eru 32,3 kWh og 36,8 kWh. Þær koma bílnum 180-260 kílómetra miðað við uppgefnar tölur. Ekkert í reynsluakstrinum gefur tilefni til að efast um þessar tölur.

Uppgefin hleðslutími frá tómum rafhlöðum og upp í 80% í DC hleðslu er 1 klst. Á AC er það 5 klst og 30 mínútur. Á venjulegri innstungu er hann 16 klst og 15 mínútur að hlaða sig alveg upp í 100% frá tómum rafhlöðum.

Verð og samantekt

Volkswagen e-Up! kostar frá 3.690.000kr. og upp í 3.990.000 kr. fyrir Style útgáfuna.

E-Up er góður rafborgarbíll sem sinnir hlutverki sínu vel. Það er gaman að aka rafbíl sem er ekki með rafbílastæla. Bíllinn er bara bíll. Það er ekki verið að reyna að snobba fyrir fínu og flottu afþreyingar kerfi og einhverjum krúsidúllum sem eru skemmtilegar en í grunninn óþarfar, þegar markmiðið er að snattast frá A-B.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×