Skoðun

Far­sælt sam­starf um for­varnir og öryggi

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Félagið var stofnað árið 1999 þegar Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg voru sameinuð. Þá urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18.000 félögum. Sjóvá Almennar tryggingar hefur átt farsælt samstarf við samtökin allt frá stofnun og hefur samstarfið meðal annars snúist um forvarnir, öryggismál og vátryggingar. Mikilvægt er að félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem starfa oft við afar krefjandi og erfiðar aðstæður séu eins vel tryggðir og mögulegt er.

Fjölbreytt verkefni

Félögin vinna náið saman að ýmsum öryggismálum og forvarnaverkefnum. Samstarfið hefur leitt af sér mikilvæg verkefni eins og veðurkortið á safetravel.is þar sem ökumenn geta á einfaldan hátt aflað sér upplýsinga um veður og færð um land allt. Í burðarliðnum er „safe travel app“ á ensku og íslensku sem kynnt verður í sumar. Þar verður hægt að skipuleggja ökuferðina út frá veðri og færð á vegum og fá tilkynningar í símann. Markmiðið er að auka öryggi allra sem ferðast á vegum landsins. Sérhannað ökupróf var framleitt fyrir ferðamenn í samstarfi við Landsbjörgu og Hertz. Allir ferðamenn sem leigja bíl hjá Hertz þurfa að horfa á fræðslumyndband og taka síðan ökuprófið til að tryggja að þeir þekki til aðstæðna á íslenskum vegum. Hálendisvaktin hefur verið rekin af Landsbjörgu yfir sumartímann frá árinu 2006 en björgunarsveitir skiptast þá á að hafa viðveru á fimm stöðum á hálendinu. Þær aðstoða ferðamenn og leiðbeina þeim ásamt því að styðja við leitar- og björgunaraðgerðir þegar þess er þörf. Hóparnir hafa aðstoðað þúsundir ferðamanna síðastliðin ár og er Hálendisvaktin mikilvægur liður í að auka öryggi ferðamanna á hálendinu. Einnig hefur verið samstarf um endurhönnun og sölu björgunarsveita á Björgvinsbeltinu. Um er að ræða níðsterkt björgunarbelti og eitt besta og fljótvirkasta öryggistækið til að ná manni úr sjó. Um áramót hefur síðan verið lögð áhersla á notkun öryggisgleraugna og varkárni í meðferð flugelda og um síðustu áramót voru útbúin 80.000 endurskinsmerki sem gefin voru hringinn í kringum landið.

Við treystum á björgunarsveitirnar

Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum björgunarsveita Landsbjargar undanfarið við eftirlit á gosstöðvum. Í frétt frá 20. apríl síðastliðnum kom fram að björgunarsveitarmenn hefðu þá samtals verið að störfum hátt í 9000 klukkustundir við eftirlit vegna eldgossins í Geldingadölum. Níu þúsund klukkustunda vinna sjálfboðaliða á einum mánuði! Bæst hefur talsvert í þann stundafjölda þegar þetta er ritað. Þegar aurskriðurnar á Seyðisfirði féllu í desember á síðasta ári var mikið verk að vinna og björgunarsveitir og slysavarnadeildin komu þá til aðstoðar. Þegar fólk lendir í vanda á hálendinu eða slys eiga sér stað eru björgunarsveitir og slysavarnadeildir kallaðar til. Íslendingar búa við náttúruvá af ýmsu tagi og við treystum á björgunarsveitirnar okkar á ögurstundu. Á Íslandi er þéttriðið öryggisnet björgunarsveita um land allt og þær eru tilbúnar að bregðast við þegar óhöpp eiga sér stað og áföll dynja yfir. Samfélagslegt vægi þeirra er því óumdeilt. Hins vegar er ekki víst að allir átti sig á hversu einstakt það er að svona öflugt net þjálfaðra sjálfboðaliða skuli vera til staðar og standa undir mikilli ábyrgð þegar kemur að öryggi og velferð borgara landsins og þeirra sem sækja okkur heim. Sú þekking sem byggð hefur verið upp innan raða Landsbjargar er dýrmæt og í raun einstök. Við erum þakklát fyrir ómetanlegt framlag þeirra og stolt af því að vera aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar. En þú getur einnig gerst styrktaraðili með því að gerast Bakvörður og styðja þannig við starf sjálfboðaliða Landsbjargar með mánaðarlegum framlögum. Þannig leggur þú þitt af mörkum við að bjarga mannslífum með því að gera samtökunum kleift að endurnýja lífsnauðsynlegan tækjabúnað og stuðla að öflugri þjálfun félagsmanna.

Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×