Fótbolti

Hefur hafnað Barcelona í tvígang

Anton Ingi Leifsson skrifar
Xavi, sem átti magnaðan feril sem leikmaður, hefur byrjað þjálfaraferilinn vel.
Xavi, sem átti magnaðan feril sem leikmaður, hefur byrjað þjálfaraferilinn vel. VÍSIR/GETTY

Xavi mun ekki taka við Barcelona í sumar en hann hefur í tvígang hafnað tilboði frá félaginu að taka við uppeldisfélaginu.

Þetta segir Xavi í samtali við miðilinn TMW en hann er nú að þjálfa Al Sadd í Katar.

Þar hefur hann framlengt samning sinn um tvö ár en heitt hefur verið undir Ronald Koeman í Katalóníu.

Því hefur Xavi verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Koeman en það verður ekki í þetta skiptið.

„Fyrir það fyrsta þá er Barcelona með þjálfara sem heitir Ronald Koeman og fólk ætti að bera virðingu fyrir því,“

„Ég er ekki að flýta mér og þetta er ekki rétti tímapunkturinn til að taka við Barcelona. Hlutirnir gerast á réttum augnablikum.“

„Ég hef sagt nei við Barcelona tvisvar, af mismunandi ástæðum. Fjölskyldulega, atvinnulega og hlutirnir féllu ekki saman,“ sagði Xavi að lokum við TMW.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×