Bílar

Uppgjör rafhlaðbakanna

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
ID.3
ID.3

Undanfarið hafa birst hér á Vísi umfjallanir um rafhlaðbakana Nissan Leaf, Peugeot e-208, Mini Cooper SE, Honda e, Volkswagen ID.3 og Kia e-Soul. Þeir verða bornir saman hér með það markmið að gera upp á milli þeirra og ákveða hver er bestur.

Ofanritaður er meðvitaður um að mörk hlaðbaka og stallbaka eru oft og tíðum óljós og það er á gráu svæði að kalla e-Soul hlaðbak, en hann er klárlega ekki stallbakur og hann er ekki jepplingur að mati blaðamanns, það er ekki nógu hátt undir hann. Hann er því settur í flokk hlaðbaka þar sem SUV (Sport Utility Vehicle)flokkur hefur ekki eignast almennilegt heimili á íslenskri tungu, allar tillögur vel þegnar.

Peugeot e-208 er reffilegur að framan með mjúkar hliðarlínur.

Samanburður

Mikill lúðrablástur var þegar ID.3 var kynntur til leiks, ef hann er besti mögulegi rafhlaðbakur sem Volkswagen getur smíðað þá þarf Volkswagen að hafa áhyggjur af „litlu“ leikmönnunum. Ekki það að Nissan sé lítill en Leaf hefur yfirhöndina yfir ID.3 að næstum öllu leyti. Kia e-Soul er góður bíll og það er afar, afar gott að ganga um hann en skottið er ekki stórt og fyrir bíl sem státar af hinum mikið notaða SUV stimpli þá ætti hann að vera með meira skottrými.

Honda e í hleðslu.

Cooper SE, e-208 og Honda e eru nær hvorum öðrum í stærð en hinum þremur. Þeir eru samt ekki síðri, þeir eru minni. Cooper SE er einn skemmtilegasti bíll sem ofanritaður hefur ekið. Honda e og e-208 eru frábærir og skemmtilegir bílar, þeir eru 5 dyra á meðan Cooper SE er þriggja dyra. Notagildið rýkur upp við það eitt að hafa afturhurðar.

Mini Cooper SE

Á heildina litið er Cooper SE skemmtilgasti bíllinn í þessum flokki, e-Soul bestur að setjast inn í og ganga um, Honda e er tæknivæddastur og afþreyingarkerfið er skemmtilegast í honum.

Kia e-Soul á hlið.

Reynsla Nissan em ákveðin brautryðjandi í fjöldaframleiðslu og sölu rafbíla hefur skilað sér í frábærum bíl, Nissan Leaf er bestur í þessum flokki og hann stendur upp úr þvögunni. Fyrstur á markað, í þessum hópi hið minnsta, skilar sér ávallt, svo lengi sem enginn annar kemur inn með byltingarkenndan bíl. Það hefur ekki gerst, nema þá auðvitað uppfærslan á Leaf sem hefur átt sér stað.

Nissan Leaf.Kristinn Ásgeir Gylfason

Niðurstaða og verð

Niðurstaðan er einföld, Leaf er ekki með flottasta afþreyingarkerfið, hann var ekki tilkynntur með óþarfa pompi og prakt né heldur er hann að rembast við að vera eitthvað sem hann er ekki.

Leaf er einfaldlega gegnheill og hann virkar sem fólksbíllinn sem hann þarf að vera og ætti að vera. Nissan hefur verið lengur í leiknum en flestir og reynslan skilar sér. Það er ástæða fyrir vinsældunum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×