Atvinnulíf

Fjölskyldum hjálpað að flytja til Íslands vegna Alvotech

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir.
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir. Vísir/Vilhelm

„Við auglýsum lausar stöður á vef Alvotech og fáum mikið magn umsókna. Við höfum einnig auglýst á ýmsum miðlum og það er mikill áhugi á störfum hjá Alvotech. En sumar stöður gengur verr að manna eins og gengur og gerist. Aðilar með mikla sérþekkingu sjá það sumir sem stóran þröskuld að flytja til Íslands,“ segir Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Aztiq Fjárfestinga, en það félag heldur utan um fasteignir sem leigðar eru út til erlendra starfsmanna hjá Alvotech og aðstoðar fjölskyldur sem flytjast erlendis frá, að koma sér fyrir á Íslandi.

Í dag og á morgun, fjallar Atvinnulífið um það með hvaða hætti íslensk fyrirtæki eru að bregðast við þegar sérþekkingu vantar á Íslandi, fyrir ný störf sem verið er að byggja upp til framtíðar.

Margir að koma frá Indlandi

Guðrún segir að starfsemi Alvotech sé þess eðlis að verið er að byggja upp alveg nýja grein starfa á Íslandi.

Af því leiðir, vantar oft þekkingu á Íslandi sem til þarf í þessi nýju störf.

Alvotech hefur brugðist við með því að ráða sérfræðinga erlendis frá til starfa.

Fyrirtækið sem Guðrún veitir forstöðu, Aztiq Fjárfestingar, sér um kaup og útleigu íbúða fyrir þessa starfsmenn og að aðstoða þá og fjölskyldur þeirra við að koma sér fyrir á Íslandi.

„Alvotech hefur ráðið um 120 starfsmenn til sín síðustu sex mánuði og yfir 220 manns á síðastliðnum tólf mánuðum. Að megninu til eru þetta sérfræðingar og háskólamenntað fólk,“ segir Guðrún og bætir við að um 57% starfsmanna Alvotech eru með meistara- eða doktorsgráðu.

Hjá fyrirtækinu starfa yfir hundrað erlendir sérfræðingar, þar af yfir fimmtíu starfsmenn frá Indlandi sem hafa flust hingað með sínum fjölskyldum,“ 

segir Guðrún.

Guðrún segir ráðningar erlendis frá almennt hafa gengið vel. 

Þar hjálpi mikið að um þessar mundir er Alvotech á þeim tímamótum að eftir tíu ára þróunarvinnu er fyrsta varan að fara á markað fljótlega.

Að sögn Guðrúnar þýðir aukinn mannauður erlendis frá, að verið er að byggja upp nýja þekkingu á Íslandi.

„Þessir sérfræðingar eru svo margir að þjálfa annað starfsfólk og þannig færa mikilvæga þekkingu til Íslands.“

Guðrún segir mikla áherslu lagða á að gera Ísland að spennandi búsetuvalkosti og að auðvelda fjölskyldum sem koma erlendis frá að aðlagast íslensku samfélagi. Þetta er liður í því að Alvotech geti ráðið til sín hæfa erlenda sérfræðinga sem síðan þjálfa upp starfsfólk hér.Vísir/Vilhelm

Reyna að auðvelda fjölskyldum flutninginn

Til þess að Alvotech geti ráðið til sín hæft starfsfólk erlendis frá, þarf að gera Ísland að spennandi valkosti sem samfélag og búsetukost.

Að sögn Guðrúnar er unnið að því að gera það, með margvíslegum hætti.

Til dæmis eru staðsetningar íbúða sem keyptar eru fyrir erlent starfsfólk, engin tilviljun.

Þannig eru þær valdar með tilliti til þess að þetta séu íbúðir í námunda við vinnustaðinn og á staðsettar nálægt allri þjónustu eins og matvöruverslunum, leik- og grunnskóla, apótek eða útivistarsvæði.

Til skoðunar nú er að kaupa íbúðir í miðborginni, en hingað til hefur Aztiq aðallega keypt íbúðir á hinum svokallaða RÚV reit og á Frakkastíg.

Það fólk sem hingað flytur, leigir þessar íbúðir til lengri eða skemmri tíma.

Það skiptir miklu máli fyrir fjölskyldufólk að það geti á auðveldan hátt aðlagast samfélaginu hér og því leggjum við mikla áherslu á að aðstoða við það, kjósi fólk aðstoð,“ 

segir Guðrún og bætir því við að þegar að fólk flyst hingað til lands, er reynt að stuðla að því að búsetuflutningarnir gangi eins greiðlega fyrir sig og hægt er.

Oft felist aðstoð við erlendar fjölskyldur því í fleiru en að koma sér upp nýju heimili á Íslandi. 

Finna þarf leikskólapláss, grunnskólapláss og fleira sem fjölskyldur þurfa.

Verðmæt þekking til Íslands

Guðrún segir þekkinguna sem erlenda starfsfólkið flytur með sér til Íslands afar verðmæta. 

En ekki síður mikilvæga til frekari uppbyggingar nýrra starfa á Íslandi.

Sem dæmi nefnir Guðrún stærsta verkefnið sem Aztiq vinnur að um þessar mundir, en það er fjármögnun og stækkun hátækniseturs í Vatnsmýri. 

Með stækkuninni mun aðsetur Alvotech tvöfaldast í stærð en þar verður einnig aðstaða fyrir sérstaka rannsóknarstofu sem Háskóli Íslands mun hafa aðgang að.

„Þá stendur Aztiq að kaupum á fullkomnu vöruhúsi við Lambhagaveg sem verður tekið í notkun þegar lyfjaframleiðslan hefst. Þessar fjárfestingar eru upp á tugi milljarða króna,“ segir Guðrún en það er í hennar verkahring að halda utan um þessar fjárfestingar og vinna með þeim hagaðilum sem við á, eins og lögmönnum, endurskoðendum, byggingatæknifræðingum og fleiri sérfræðingum.

Með tíð og tíma byggist svo upp þekking hér innanlands. Alvotech er í samstarfi við Háskóla Íslands og smám saman útskrifast fleiri sérfræðingar frá Háskólanum sem geta þá starfað á þessum vettvangi, meðal annars hjá Alvotech,“

segir Guðrún.


Tengdar fréttir

Vélrænt nám mun hafa áhrif á öll fyrirtæki

Vélrænt nám mun hafa áhrif á öll fyrirtæki, stór sem smá og það er ekki eftir neinu að bíða með að nýta sér þessa tækni. Sem dæmi má nefna hvernig vélrænt nám getur dregið úr brottfalli viðskiptavina.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×