Makamál

Hefur þér liðið eins og maki þinn skammist sín fyrir þig?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Þegar maki þinn verður vandræðalegur yfir einhverju sem að þú gerir er eitt að finna fyrir því að maki þinn skammist sín fyrir þig er svo annað og öllu alvarlegra.
Þegar maki þinn verður vandræðalegur yfir einhverju sem að þú gerir er eitt að finna fyrir því að maki þinn skammist sín fyrir þig er svo annað og öllu alvarlegra. Getty

Virðing er ein af grunnstoðunum í flestum ástarsamböndum. Að bera virðingu fyrir maka sínum og finna fyrir gagnkvæmri virðingu. Að finna fyrir því að makinn sé stoltur af þér, vilji sýna þig, hreyki sér af þér og lyfti þér upp sem manneskju. 

Eðlilega getum við gert eitthvað, sagt eitthvað eða verið á einhvern hátt sem fær makann til að fara hjá sér, verða vandræðalegan eða jafnvel skammast sín. 

En hvenær er það orðið regla en ekki undantekning að þú finnir fyrir því að maki þinn skammist sín fyrir þig? 

Þegar makinn fer stundum hjá sér eða verður vandræðalegur yfir einhverju sem þú gerir er eitt en þegar þér líður eins og hann raunverulega haldi þér niðri á einhvern hátt eða skammist sín fyrir þig er annað og öllu alvarlega. 

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi sem gætu gefið til kynna að maki þinn skammist sín á einhvern hátt fyrir þig. 

  • Lætur þig finna fyrir óöryggi í kringum annað fólk
  • Forðast það að sækja viðburði með þér
  • Er alltaf að setja út á þig fyrir framan fólk
  • Reynir að stjórna því hvernig þú lítur út, klæðir þig eða berð þig. 
  • Forðast það að kynna þig fyrir öðru fólki
  • Birta meðvitað ekki myndir af þér 

Allt getur þetta verið hluti af ákveðinni stjórnun í sambandi og andlegu ofbeldi sem alltaf ætti að taka alvarlega. 

Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru eða hafa verið í ástarsambandi. 


Tengdar fréttir

Trúnaðarvinir af gagnstæðu kyni ekki alltaf vel séðir í samböndum

Góður vinur er gulli betri og er fátt dýrmætara í lífinu en að eiga nána og trausta vini til að deila með gleði, sorgum, sigrum eða raunum. Sönn vinátta er yfirleitt sú vinátta sem endist út lífið hvort sem það eru vinir sem hafa fylgt okkur frá æsku eða fólk sem við kynnumst í gegnum leik og störf seinna á lífsleiðinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×