Innlent

Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi liggur fyrir

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Efstu fjögur á lista frá vinstri: Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Guðbrandur Einarsson.
Efstu fjögur á lista frá vinstri: Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Guðbrandur Einarsson. aðsend mynd

Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, og Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum, leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn þar sem fyrsti listi flokksins er kynntur í heild sinni.

Þá skipar Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.

„Listinn er skipaður tuttugu öflugum frambjóðendum. Þau eru á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu og hafa sameiginlega sýn á framtíð íslensks samfélags. Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan,“ segir í tilkynningu Viðreisnar en listann í heild sinni má sjá hér að neðan.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi:

1.Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.

2.Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.

3.Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.

4.Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.

5.Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.

6.Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður. Hveragerði.

7.Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.

8.Kristina Elísabet Andrésdóttir, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.

9.Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.

10.Jasmina Crnac, stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.

11.Jóhann Karl Ásgeirsson, háskólanemi. Hveragerði.

12.Kristjana H. Thorarensen, geðtengslafræðingur. Þorlákshöfn.

13.Halldór Rósmundur Guðjónsson, lögfræðingur. Reykjanesbær.

14.Justyna Wroblewska, deildarstjóri í leikskóla og nemi í mannauðsstjórnun. Reykjanesbær.

15.Heimir Hafsteinsson, trésmíðameistari og aðstoðarmaður byggingafulltrúa í Rangárþingi ytra. Hella.

16.Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Vestmannaeyjar.

17.Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður. Vestmannaeyjar.

18.Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkennari. Suðurnesjabær.

19.Hannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Þorlákshöfn.

20.Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Selfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×