Neytendur

Fella niður vexti smálána í vanskilum

Eiður Þór Árnason skrifar
Deilt hefur verið um lögmæti smálánanna.
Deilt hefur verið um lögmæti smálánanna. Vísir/Vilhelm

BPO Innheimta hefur keypt allt kröfusafn Kredia, Hraðpeninga, Smálána, 1909 og Múla en öll fyrirtækin eru í eigu smálánafyrirtækisins eCommerce 2020.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá innheimtufyrirtækinu sem segir að með kaupunum á kröfusafninu hafi allir vextir og lántökukostnaður aðrir en hefðbundnir dráttarvextir verið felldir niður. Þá staðhæfir BPO að með þessu hafi óvissu um lögmæti krafnanna verið eytt.

„Til 15. maí býður BPO Innheimta öllum skuldurum, sem vilja leysa úr sínum málum án dráttarvaxta og innheimtukostnaðar, að ganga frá sínum skuldum óháð því hversu gamlar þær eru. Öllum skuldurum býðst að gera upp einungis höfuðstól lánanna svo framarlega sem það er gert í síðasta lagi 15. maí og þá verða dráttarvextir og innheimtukostnaður felldur niður.“

Segja lánin ólögmæt

Deilt hefur verið um lögmæti krafna umræddra smálánafyrirtækja og hafa Neytendasamtökin sagt lánin vera ólögmæt. Neytendastofa úrskurðaði árið 2019 að smálánafyrirtækin í eigu eCommerce 2020 hafi brotið gegn neytendalögum, meðal annars með því að rukka of háa vexti og kostnað af lánum sínum.

Eftir að Neytendastofa hóf athugun sína gerði Ecommerce 2020 breytingar á lánafyrirkomulagi sínu og lækkaði kostnað við lántöku niður í 53%. Fyrir breytingu var árleg hlutfallstala kostnaðar eða vextir og kostnaður af lánunum á bilinu 3.444% til 13.298% eftir lánstíma og lánsfjárhæð. Kredia, Hraðpeningar, Smálán, 1909 og Múla hafa nú hætt að veita ný lán.

Þá hafa Neytendasamtökin sakað fyrirtækið Almenna innheimtu, sem hefur áður séð um innheimtu umræddra krafna, um ólöglega innheimtu smálána. Auk þess komst Úrskurðarnefnd lögmanna að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið  hafi brotið innheimtulög.

Kaupa endurgreiðslurétt

Í tilkynningu frá BPO Innheimtu býðst fyrirtækið til að kaupa endurgreiðslurétt skuldara gagnvart smálánafyrirtækjunum í þeim tilfellum þar sem fólk á kröfu á þau vegna ofgreiddra vaxta eða annars lántökukostnaðar. Með því muni BPO lækka útistandandi lán í kröfusafni sínu til samræmis við þann kostnað sem var ofgreiddur.

Er fólk sem á ógreidd lán hjá Kredia, Hraðpeningum, Smálánum, 1909 og Múla sem vill nýta sér úrræðið eða greiða upp lán sín beðið um að hafa samband við BPO Innheimtu.


Tengdar fréttir

Segja innheimtufélag smálánafyrirtækja hafa brotið lög

Úrskurðarnefnd lögmanna er sögð hafa komist að þeirri niðurstöðu að Almenn innheimta, sem starfað hefur fyrir smálánafyrirtæki, hafið brotið innheimtulög. Neytendasamtökin segja að engu að síður sé engin leið til þess að stöðva það sem þau telja ólöglega innheimtu smálána.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×