Sport

Dagskráin í dag: Tryggvi, Ronaldo og Zlatan

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það kæmi ekki mikið á óvart ef að þessi myndi skora í dag.
Það kæmi ekki mikið á óvart ef að þessi myndi skora í dag. (Alessandro Tocco/AP)

Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag en deildirnar í Evrópu fara aftur að rúlla eftir landsleikina sem fóru fram í þessari viku og þeirri síðustu.

Klukkan 10.30 er fyrsta útsending dagsins er Zlatan Ibrahimovic og félagar í AC Milan mæta Sampdoria. Cristiano Ronaldo og félagar mæta svo Tórínó í grannaslag klukkan 15.55.

Topplið Inter Milan er svo í eldlínunni 18.40 en alls eru fimm beinar útsendingar frá ítalska boltanum í dag. Spænski fótboltinn fer einnig af stað í dag eftir hlé en Real Madrid mætir Eibar á heimavelli klukkan 14.10.

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza mæta Herbalife Gran Canaria klkkan 18.35 í spænska körfuboltanum en ANA Inspiration golfmótið heldur áfram á Stöð 2 Golf.

Allar beinar útsendingar helgarinnar sem og næstu daga má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×