Innlent

Hefur drukkið kaffi með öllum forsetum lýðveldisins

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar

Hin níutíu og tveggja ára prestsfrú Vigdís Jack hefur nú farið í kaffi til allra forseta lýðveldisins, eftir að Guðni Th. Jóhannesson bauð henni og fjölskyldu hennar heim í dag. Bæði sögðu þau það mikinn heiður að fá að hitta hvort annað.

Sveitastelpan sem varð prestsfrú er nafn bókar Gyðu Skúladóttur sem fjallar um ævi ömmu hennar, Vigdísar Jack. Vigdís fæddist í torfbæ og hún sá bíl og rafmagnsljós í fyrsta sinn níu ára gömul og var 27 ára þegar hún fékk að búa við rennandi vatn. Guðni Th. Jóhannesson las bókina nýverið, og staldraði þar við kafla um heimsóknir Vigdísar til allra forseta lýðveldisins - nema hans.

„Og ég hugsaði þá þegar með mér – úr þessu verðum við að bæta,“ sagði Guðni þegar hann hitti Vigdísi í dag.

Ástæða heimsóknanna var sú að í fyrri tíð var viðhöfð sú hefð að forsetar byðu prestum og prestsfrúm til kaffisamsætis. Bæði lýstu þau þakklæti og sögðu það heiður að hafa fengið að koma saman í dag.

„Ég segi frá því í bókinni að ég hefði farið í kaffi til allra forsetanna, nema Guðna, því hann er náttúrlega svo ungur og ég er orðin svo gömul,“ segir Vigdís og hlær. Hún segir eina heimsóknina standa upp úr.

„Sérstaklega man ég eftir yndislegri stund. Það var messa hérna og altarisganga. Og það var sú hátíðlegasta athöfn sem ég hef verið í,“ segir hún, en sú hátíð var í forsetatíð Ásgeirs Ásgeirssonar.

Vigdís Jack var til viðtals í þættinum Margra barna mæður árið 2015, líkt og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×