Innlent

Þessar götur verða mal­bikaðar í borginni í sumar

Atli Ísleifsson skrifar
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða bæði malbikun yfirlaga með fræsun og malbikun sem og malbikun yfir eldri slitlög.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða bæði malbikun yfirlaga með fræsun og malbikun sem og malbikun yfir eldri slitlög. Vísir/Vilhelm

Borgarráð Reykjavíkur hefur heimilað malbikunarframkvæmdir sumarið 2021 fyrir 1.117 milljónir króna.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða bæði malbikun yfirlaga með fræsun og malbikun sem og malbikun yfir eldri slitlög.

„Áætlaður kostnaður er 916 m.kr. Auk þess verða framkvæmdir við malbiksviðgerðir fyrir 201 m.kr. samkvæmt rekstraráætlun umhverfis- og skipulagssviðs.

Framkvæmdir ársins eru í samræmi við átak um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkur. Á árunum 2018-2022 er gert ráð fyrir að varið verði um 6200 m.kr. til endurnýjunar á malbiksyfirlögum auk hefðbundinna malbiksviðgerða.“

Að neðan má sjá myndir frá borginni þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir eru listaðar eftir hverfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×