Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL.
Frumkvöðulsstarf Hyundai
Nexo er rúmgóður fimm manna vetnisknúinn rafbíll sem búinn er efnarafal sem umbreytir vetni af eldsneytistanki bílsins yfir í rafmagn sem bæði er veitt beint inn á rafmótor bílsins og inn á rafhlöðu hans, þaðan sem rafmótorinn fær einnig nauðsynlega orku til stjórnbúnaðar og aksturs. Í umsögn sinni segir dómnefndin Hyundai hafa sýnt fram á að vetni geti mögulega verið „skilvirkari og hagnýtari aflgjafi í bifreiðum“ en aðrir sem meira eru nýttir í dag.
Þægileg og hrein tækni
Rafmótor Nexo er 120 kW og 163 hestöfl. Rafmótorinn togar allt að 395 Nm og skilar allt að 179 km/klst. hámarkshraða. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er 9,2 sekúndur og 7,4 sek. frá 80 km hraða í 100 og er enn enginn vetnisknúinn rafbíll á markaðnum sem skákar afköstum hans í þessum flokki. Eldsneytisrými Nexo fyrir vetni er 156,6 lítrar (6,3 kg) og dregur bíllinn allt að 666 km á tankinum samkvæmt WLTP. Einungis tekur 3-4 mínútur að fylla vetnistankinn og aldrei þarf að stinga bílnum í samband við rafmagn til að hlaða rafhlöðuna. Nexo þolir kaldstart í allt að -30°C og hentar bíllinn því mjög vel á Íslandi.

Hátæknivæddur
Nexo er sérlega vel búinn öllum helsta þæginda- og öryggisbúnaði Hyundai, þar á meðal margvíslegri ökuaðstoð og er raunar hægt að láta Nexo aka algerlega sjálfur án nokkurrar aðkomu ökumanns eins og Hyundai sýndi fram á skömmu fyrir Vetrarólympíuleikana í PyeongChang 2018 þegar ekin var um 300 km vegalengd á þjóðvegum, hliðarvegum, um hringtorg, jarðgöng og fleira. Sjálfstýring bíla í umferðinni er þó enn hvergi leyfileg af lagatæknilegum ástæðum og er alsjálfvirk tækni bílsins því læst sem stendur.
Langt á undan sinni samtíð
Nexo, sem kom á markað 2018, er önnur kynslóð Hyundai á vetnisknúnum rafbíl fyrir almennan markað, en bíllinn tók við af sportjepplingnum iX35 sem kom á markað í Evrópu og Asíu árið 2013. Nexo er fáanlegur í átján löndum víða um heim, þar af þrettán Evrópulöndum að Íslandi meðtöldu eins og hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu Hyundai á Íslandi.
Reynsluakstursbíll til taks
Hjá Hyundai í Garðabæ er Nexo til taks fyrir áhugasama sem hafa áhuga á að prófa bílinn og fræðast nánar um tækni hans og þá innviðauppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað á suðvesturhorni landsins á vegum Skeljungs.
Tímaritið GQ
Alþjóðatímaritið GQ var upphaflega stofnað í New York 1931 og fjallaði tímaritið í byrjun aðallega um karlatísku enda hét það í byrjun Gentlemen's Quarterly. Tímaritið, sem kemur út mánaðarlega á viðkomandi tungumáli í 21 landi, hefur í dag mjög víða skírskotun og fjallar nú einnig um bíla, mat, líkamsrækt, ferðalög, íþróttir, tækni og fjölmargt fleira og veitir blaðið árlega verðlaun í hverjum málaflokki