Neytendur

Eig­endur inn­eignar­nóta muni lík­lega sitja eftir með sárt ennið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Verslun Geysis við Skólavörðustíg 12.
Verslun Geysis við Skólavörðustíg 12. Vísir/vilhelm

Eigendur inneignarnóta og gjafabréfa í verslanir Geysis, sem lokað var nú um mánaðamótin, munu líklega sitja eftir með sárt ennið, fari fyrirtækið í þrot. Fjölmargar fyrirspurnir hafa borist Neytendasamtökunum um málið en formaður samtakanna segir almennar kröfur í þrotabú því miður sjaldan fást greiddar.

Ekki liggur fyrir á þessum tímapunkti hvort félagið sem rekur Geysisverslanirnar, auk fjölda minjagripaverslana í miðbæ Reykjavíkur, verði úrskurðað gjaldþrota. Starfsmannafundur sem haldinn var á mánudag gefur þó tilefni til að ætla að svo verði.

Fram kemur í tilkynningu á vef Neytendasamtakanna að ef félagið fari í þrot þurfi eigendur inneignarnóta og gjafabréfa að lýsa kröfum í þrotabúið, sem verði þá að svokölluðum „almennum kröfum“ í búið.

„Almennar kröfur fást því miður sjaldan greiddar þar sem þær fara aftast í kröfubunkann ef svo má orða. Því er ekki ólíklegt að eigendur inneignarnóta og gjafabréfa sitji eftir með sárt ennið og tapaðar kröfur,“ segir í tilkynningu samtakanna.

„Við höfum fengið fjölmargar fyrirspurnir frá fólki sem á inneignarnótur eða gjafabréf,“ segir Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna í samtali við Vísi. Hann ítrekar það sem fram kemur í tilkynningunni; að þegar fyrirtæki fari á hausinn sé það því miður þannig að almennar kröfur mæti afgangi. Laun og önnur gjöld gangi fyrir.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.Vísir/vilhelm

Verslun undir merkjum Geysis er enn rekin í Haukadal. Sú verslun er þó rekin af öðru félagi en í eigu sama eiganda. Breki segir að samtökunum hafi borist ábendingar um að inneignarnótur í hinar Geysisverslanirnar gildi ekki í Haukadal. Samtökunum hafi þó ekki tekist að sannreyna það.

Samtökin benda jafnframt á það í tilkynningu að hafa beri í huga að fordæmi séu fyrir því að nýr rekstraraðili taki við inneignarnótum „og neytendur verði því ekki varir við eigendaskiptin.“

„Ekkert liggur fyrir um áframhaldandi rekstur verslana Geysis að svo stöddu, en rétt er að neytendur varðveiti nótur sínar á meðan málin skýrast,“ segir í tilkynningu. Frekari upplýsingar um skilarétt og inneignarnótur má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Andrúmsloftið þungt en engin dramatík

Stéttarfélagið VR er nú með launamál um fjörutíu félagsmanna, sem áður voru starfsmenn Geysis, til meðferðar. Forstöðumaður kjaramálasviðs VR segir framhaldið nú velta á því hvenær félagið verði úrskurðað gjaldþrota. Andrúmsloftið á starfsmannafundi á mánudag hafi verið þungt.

Verslunum Geysis lokað og öllum sagt upp

Verslanir Geysis voru lokaðar í gær á fyrsta degi febrúarmánaðar. Þá hefur öllu starfsfólki verið sagt upp störfum samkvæmt heimildum fréttastofu. Fyrirtækið hefur verið í rekstrarvanda vegna fárra ferðamanna í kórónuveirufaraldrinum. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×