Viðskipti erlent

Kyn­lífs­verka­fólki gert að yfir­gefa Rauða hverfið

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Óvíst er hvenær kynlífsverkafólkið þarf að yfirgefa Rauða hverfið og hvert það verður flutt.
Óvíst er hvenær kynlífsverkafólkið þarf að yfirgefa Rauða hverfið og hvert það verður flutt. Getty/Dean Mouhtaropoulos

Borgarstjórn Amsterdam hefur samþykkt tillögu um að miðstöð þeirra sem vinna kynlífsvinnu í borginni verði færð úr hinu svokallaða Rauða hverfi í miðborginni í annað hverfi fjarri miðbænum.

Femke Halsema, borgarstjóri Amsterdam, lagði fram tillögu þess efnis að kynlífsklúbbum í miðborginni yrði lokað og viðskiptamönnum gert að færa sig um set. Kynlífsverkafólkinu verður boðið að færa fyrirtæki sín úr hverfinu í annað hverfi í borginni. Enn er ekki búið að ákveða hvar starfsemin eigi að fá að fara fram.

Kristilegir demókratar og kristna sambandið, stjórnmálaflokkar í Hollandi, hafa lengi barist fyrir því að hverfinu verði lokað. Rauða hverfið er þekkt fyrir það að kynlífsverkafólk dansi og sýni listir sínar í upplýstum gluggum í hverfinu. Nú hefur VVD flokkurinn, flokkur Marks Rutte forsætisráðherra Hollands, Verkamannaflokkurinn og Græningjaflokkurinn gengið til liðs við hina kristilegu flokka í málinu.

„Þetta snýst um að núllstilla Amsterdam sem borg fyrir ferðamenn,“ er haft eftir Dennis Boutkan, borgarfulltrúi Verkamannaflokksins, í frétt The Guardian. 

Halsema færði þau rök fyrir lokun hverfisins að konur sem ynnu í sýningargluggunum væru orðnar aðdráttarafl fyrir ferðamenn og að þær væru farnar að verða fyrir ofbeldi vegna þessa.

Stuttu eftir að tillagan var kynnt var aðgerðahópurinn Red Light United stofnaður. Hélt hópurinn því fram að 90 prósent þeirra 170 kynlífsverkakvenna sem hann ræddi við vildi vinna áfram í gluggunum í hverfinu.

Einn meðlimur hópsins sagði í samtali við Het Parool dagblaðið að það myndi koma sér illa fyrir starfsemina yrði hún flutt. Viðskiptavinir myndu ekki vita hvar þjónustuna væri að finna þar sem hverfið sé heimsþekkt.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×