Viðskipti erlent

Tólf þúsund missa vinnuna þegar net­verslun tekur yfir Deben­hams

Eiður Þór Árnason skrifar
Debenhams óskaði eftir gjaldþrotameðferð í apríl síðastliðnum, í annað skipti á einu ári. 
Debenhams óskaði eftir gjaldþrotameðferð í apríl síðastliðnum, í annað skipti á einu ári.  Getty/Leon Neal

Allt að tólf þúsund starfsmenn munu missa vinnuna þegar öllum verslunum breska vöruhússins Debenhams verður lokað á næstu misserum. Netverslunin Boohoo hefur fest kaup á vörumerki og vefsíðu vöruhússins úr þrotabúi þess en hyggst ekki halda áfram rekstri 118 Debenhams verslana víðs vegar um Bretland. 

Kaupverð eignanna er sagt nema 55 milljónum punda, eða rúmum 9,7 milljörðum íslenskra króna. Kaupin voru tilkynnt eftir að ítrekar tilraunir til að bjarga rekstri Debenhams urðu að engu.

Vöruhúsið hefur glímt við mikinn rekstrarvanda síðustu ár og átt erfitt með að fóta sig í breyttu rekstrarumhverfi. Sóttvarnartakmarkanir hafa sömuleiðis leikið breska kaupmenn grátt síðastliðið ár og er stutt síðan að Debenhams tilkynnti að sex verslanir yrðu ekki opnar á ný eftir að útgöngubann fellur úr gildi. Þeirra á meðal var flaggskip keðjunnar á Oxford-stræti í London, er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins

Önnur þrettán þúsund störf í húfi

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsvarsmenn Boohoo festa kaup á eignum sögufrægra breskra verslunarkeðja sem hefur fatast flugið. Selur netverslunin meðal annars vörur undir merkjum Karen Millen, Oasis og Coast en í öllum tilfellum sýndu stjórnendur Boohoo því lítinn áhuga að standa straum að rekstri verslana þeirra.

Einnig hafa borist fregnir af því að netverslunin Asos sé í viðræðum um kaup á eignum fatakeðjanna Topshop, Topman, Miss Selfridge og HIIT en eigandi þeirra Arcadia Group óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í fyrra. Stjórnendur Asos hafa gefið út að ef samkomulag náist verði verslunum lokað. Um þrettán þúsund manns starfa í 444 verslunum Arcadia Group. 

Fréttin hefur verið uppfærð.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×