Matur

Vegan Harira súpa, naan brauð og hummus að hætti Gústa kokks

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gústi kokkur skorar á Valgerði Árnadóttur að deila vegan uppskrift með lesendum Vísis.
Gústi kokkur skorar á Valgerði Árnadóttur að deila vegan uppskrift með lesendum Vísis.

Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind fóru af stað í vikunni og þar sem margir Íslendingar taka nú þátt í Veganúar, fannst okkur tilvalið að fá nokkra einstaklinga til að deila vegan uppskriftum með lesendum.

 Fyrsta uppskriftin kemur frá Gústa kokki, sem áhorfendur fá að kynnast í þáttunum. Hann skorar á Valgerði Árnadóttur að taka við keflinu og elda einhvern góðan vegan rétt og deila svo uppskriftinni.

Uppskrift Gústa má finna hér fyrir neðan. 

Hér er uppskrift að Harira súpu sem er Marokkósk grænmetissúpa. Hún er mjög hefðbundin súpa sem er borðuð á Ramadan og föstum hjá Ísraelum jafnt sem Aröbum. Næringarmikil og fersk súpa sem lætur manni líða vel. Fullkomin núna eftir veisluhöldin sem eru að baki.

Harira súpa

  • 1 laukur í teningum
  • 5 hvítlauksgeirar í sneiðum
  • 3 stilkar sellerý í teningum
  • 3 gulrætur í sneiðum
  • 1/2 tsk túrmerik
  • 1 tsk malað cumin
  • 1/2 rauður chili
  • 1 búnt steinselja söxuð
  • 1 búnt koreander saxað
  • 1 dós(450gr) niðursoðnir tómatar
  • 1,75 lítrar grænmetissoð
  • 1 bolli kjúklingabaunir
  • 1 bolli rauðar linsubaunir(má nota grænar en súpan verður fallegri með rauðum)
  • 1 tsk nýmalaður svartur pipar
  • 2 sítrónur safi og zest
  • 1 lime safi og zest

Aðferð:

Skera grænmetið og steikja það varlega í olíunni, ekki brúna. Bæta kryddum úti, svo tómötum og grænmetissoði. Sjóða rólega í 10 mín. Bæta í baunum og sjóða rólega í 30 mínútur. Sítrónur og lime. Smakka til með salti og pipar.

Hummus

  • 2 bollar kjúklingabaunir
  • 2 hvítlauksrif söxuð
  • 1 msk Tahini
  • 1/3 tsk cumin
  • Klípa cayennepipar
  • 1 lime safi og ze
  • Smakka til með salti

Aðferð:

Allt í matvinnsluvél og blandað vel þar til kremað.

Naan brauð

  • 2 bollar hveiti (hvernig hveiti sem we)
  • 2 msk hrásykur
  • 2 tsk ger
  • 3/4 bolli volgt vatn (37 gráður)
  • 1/2 tsk sjávarsalt
  • 4 msk hreint vegan jógúrt
  • 2 msk ólívuolía

Aðferð: 

  1. Setjið gerið og sykurinn í volgt vatn og blandið vel.
  2. Látið standa á heitum stað í 20 mínútur
  3. Bætið öllu öðru í og hnoðið vel saman.
  4. Látið hefast í 60 mínútur.
  5. Gerið 40-50 gr kúlur og fletjið út með kökukefli.
  6. Steikið á pönnu eða grillið.

Tengdar fréttir

Mun sakna smjörsins meira en kjötmáltíðanna

Lóa Pind Aldísardóttir þáttastjórnandi fékk fjórar kjötelskandi fjölskyldur til að gjörbreyta mataræði heimilisins í fjórar vikur fyrir þættina Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind. Þættirnir fóru af stað í gær og verða alls fimm talsins.

Ástríðuveiðimaður í vegan tilraun

„Ég fer dálítið í gæs og svo fer maður náttúrulega á rjúpu, til að ná í jólamatinn. Það eru skemmtilegustu veiðarnar. Maður labbar heilu og hálfu dagana og fær ekki neitt. En það er bara fínt,“ segir Sigurður Leifsson, ástríðuveiðimaður og einn af eigendum World Class.

Hugrakkir íslenskir kúabændur taka þátt í vegan tilraun

„Frá því ég var lítil þá hugsaði ég alltaf að prufa sem flest. Áður en ég færi að velja mér starf og annað til að geta dæmt, eða prufað sem flestar hliðar. Þannig að það var það sem ýtti manni út í þetta,“ segir Hrafnhildur Baldursdóttir kúabóndi á Litla-Ármóti á Suðurlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×