Líklega kaupir Seðlabankinn gjaldeyri á sumrin og selur á veturna 15. maí 2013 12:50 „
Í sem stystu máli virðist planið hljóma þannig að bankinn kaupir gjaldeyri á sumrin og selur hann aftur á veturna.“ Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um að ólíkt því sem búast mátti við tilkynnti Seðlabankinn ekki um í morgun að hann hafi ákveðið að hefja á ný regluleg kaup á gjaldeyri á markaði til að styðja við óskuldsettan gjaldeyrisforða bankans. Hins vegar segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar að bankinn mun leitast við að auka óskuldsettan gjaldeyrisforða eftir því sem aðstæður leyfa, en slíkt sé langtímamarkmið. Í Morgunkorninu segir að í yfirlýsingu nefndarinnar sé gefið til kynna að Seðlabankinn hyggist beita inngripum á gjaldeyrismarkaði á næstunni til að jafna flæði gjaldeyris. Segir í yfirlýsingunni að dregið hafi úr gjaldeyrismisvægi í efnahagsreikningum fjármálastofnana að á undanförnu og gengi krónunnar hefur verið nálægt því sem að óbreyttu má ætla að nægi til þess að ná verðbólgumarkmiðinu á næstu misserum. „Telur nefndin að aðstæður sem þessar skapi forsendur fyrir aukinni virkni Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði næsta kastið með það að markmiði að draga úr gengissveiflum miðað við stöðu krónunnar að undanförnu,“ segir í Morgunkorninu. „Í sem stystu máli virðist planið hljóma þannig að bankinn kaupir gjaldeyri á sumrin og selur hann aftur á veturna. Lítur út fyrir að hann ætli sér að haga gjaldeyriskaupunum eftir flæðinu á hverjum tíma á næstunni fremur en kaupa ákveðna fjárhæð í hverri viku, og horfi til þess að halda gengi krónu í námunda við núverandi gengi næsta kastið. Sagði Seðlabankastjóri á fundi með greiningaraðilum og fjölmiðlum í morgun að bankinn væri nú að þessu leyti búinn að taka upp verðbólgumarkmið plús sem hefur verið í farvatninu um nokkra hríð en meginbreytingin felst í því að þá er gjaldeyrisinngripum beitt með virkari hætti en áður til að skapa stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og tryggja verðbólgumarkmiðið.“
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira