Heimsmarkmiðin

Nítján milljónir barna á vergangi í heimalandi sínu vegna átaka

Heimsljós
UNICEF

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) áætlar að 19 milljónir barna hafi verið á vergangi innan heimalandsins á síðasta ári eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átaka og ofbeldis. Börn á vergangi hafa aldrei verið fleiri, samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna sem birt var í dag.

Skýrslan, sem ber yfirskriftina „Lost at Home“, skoðar hættur og áskoranir sem börn á vergangi standa frammi fyrir og þær nauðsynlegu aðgerðir sem ráðast þarf í til að vernda þau. „Nú, í heimsfaldri COVID-19, eru þessi börn berskjölduð fyrir afleiðingum hans, beinum og óbeinum,“ segir í frétt UNICEF.

„Milljónir barna um allan heim eru nú þegar án viðeigandi verndar og umönnunar,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Þegar ný krísa kemur upp, eins og COVID-19 heimsfaraldurinn, er þessi hópur sérstaklega viðkvæmur. Það er nauðsynlegt að stjórnvöld og mannúðarsamtök vinni saman að því að tryggja öryggi þeirra, heilsu og menntun.“

Í skýrslunni kemur fram að börn á flótta innan heimalands síns skorti grunnþjónustu og eigi frekar á hættu að verða fyrir ofbeldi, misnotkun eða mansali. Þá aukast líkurnar á að þau verði hneppt í barnaþrælkun, barnahjónabönd eða verði viðskila við fjölskyldur sínar sem augljóslega stofni velferð þeirra, heilsu og öryggi í hættu. Börn á vergangi búi oft í yfirfullum búðum og nýbyggðum þar sem verulega skortir á hreinlæti og hreinlætisaðstöðu og smitleiðir því mýmargar.

Samkvæmt skýrslu UNICEF þurftu 12 milljónir barna að flýja heimili sín innan heimalandsins í fyrra, 3,8 milljónir vegna átaka og ofbeldis. En 8,2 milljónir vegna náttúruhamfara á borð við flóð og fellibylji.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×