Viðskipti innlent

10-11 til sölu

Arion banki hefur ákveðið að bjóða verslunarkeðjuna 10-11 til sölu. Verslunin er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka og var áður í eigu Haga, sem var tekið yfir af bankanum á síðasta ári.

Hagar voru í eigu Jóhannesar Jónssonar og fjölskyldu.

Samkvæmt tilkynningu frá Arion banka verður boðið til sölu allt hlutafé í Rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. og er gert ráð fyrir að það verði selt í einu lagi.

Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um viðeigandi þekkingu og fjárhagslegan styrk. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum í félagið er til 18. maí.

Rekstrarfélag Tíu-ellefu ehf. rekur 23 verslanir undir merkjum 10-11 á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri. Hjá félaginu starfa um 200 manns.

Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem hefur umsjón með söluferlinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×