Viðskipti innlent

240 milljónir fyrir að hætta hjá Hampiðjunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Menn við vinnu í Hampsmiðjunni.
Menn við vinnu í Hampsmiðjunni. Vísir/Anton
Stjórn Hampiðjunnar hefur gert starfslokasamning við forstjóra fyrirtækisins til síðustu þrettán ára, Jón Guðmann Pétursson.

Í tilkynningu Hampiðjunnar til Kauphallarinnar kemur fram að kostnaður Hampiðjunnar vegna starfslokanna, uppgjörs á bónusgreiðslu og vegna hækkunar á gengi fyrirtækisins sé 1.550 þúsund evrur eða jafnvirði 240 milljóna króna á gengi dagsins í dag.

Jón Guðmann lýkur störfum hjá fyrirtækinu í lok maí eftir 27 ár hjá fyrirtækinu. Hjörtur Erlendsson tekur við starfi forstjóra hjá fyrirtækinu. Hann hefur síðustu 11 ár verið framkvæmdastjóri Hampidjan Baltic í Litháen, ásamt því að vera staðgengill forstjóra Hampiðjunnar.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×