Viðskipti innlent

Hafnarfjörður endurfjármagnar skuldir með útgáfu skuldabréfa

VÍSIR/GVA
Hafnarfjarðarbær hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk. Útgáfan er liður í endurfjármögnun á skuldum bæjarins sem og fjármögnun hjúkrunarheimilis. Þetta kemur fram á vefsíðu bæjarins.

H.F. Verðbréf hafði umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna. Skuldabréfaflokkurinn verður gefinn út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í dag. Samkvæmt skilmálum verða bréfin tekin til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. innan árs frá útgáfudegi bréfanna.

Skuldabréfin bera 3,75 prósent fasta vexti og eru verðtryggð jafngreiðslubréf til 30 ára með greiðslu afborgana og vaxta á sex mánaða fresti.

Gefnir eru út 5,5 milljarðar króna að nafnverði en samkvæmt skilmálum er hægt að stækka flokkinn i 8,0 milljarða króna.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri fagnar þessum áfanga og segir hann staðfesta þann árangur sem náðst hefur í rekstri bæjarins á síðustu árum. Skuldabréfaútboðið og kjör þeirra sýni að fjárfestar hafa trú á Hafnarfjarðarbæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×