Þeir gömlu eru flottastir Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. janúar 2016 11:45 Strákarnir eru reynsluökumenn,” segir Sigurvin sem hér er á milli þeirra Arnars og Ara. . Mynd/úr einkasafni „
Ég á ótrúlegustu bíla. Það eru svona tólf til fimmtán ár frá því ég hóf að safna þeim skipulega en nokkrir eru frá því ég var lítill,“ segir Sigurvin Jónsson sölustjóri hjá BM Vallá á Akureyri sem hefur stillt upp smábílasafni sínu á vinnustaðnum að Austursíðu 2. Þar eru um 1300 bílar og sá elsti 90 ára að sögn eigandans. „Ég er nýbúinn að setja safnið upp hér í nokkuð marga skápa, það vekur athygli og ég tek á móti hópum hér utan vinnutíma. Hef svo velviljaða yfirmenn.“ Í safninu eru um 1300 smábílar frá ýmsum tímum.Löggubílar víðsvegar að úr heiminum eru í safni Siguvins. Hann hefur sérlega gaman af keppnis- og rallýbílum, á yfir 100 Ferrari og helling af rússneskum bílum. Hvar nær hann í þetta allt? „Ég versla á E-bay, fer á skran-og bílskúrssölur og hirði allt sem að mér er rétt. Svo býtta ég við aðra safnara. Þetta er skemmtilegt áhugamál og stórt úti um allan heim. Það eru haldnar smábílasýningar í íþróttasölum í Bretlandi. Sigurvin kveðst hafa verið öfundaður af vinum sínum af því hvað hann átti marga bíla sem strákur. Ferrari eru flottir.„Ég bjó í Svarfaðardal þegar ég var gutti en pabbi vann í sláturhúsinu á Svalbarðsströnd og kom alltaf við á Akureyri á föstudögum á heimleið og keypti bíl handa mér. Oftast Corgi. Ég vildi alveg eiga þá bíla núna í upprunalegum umbúðum, þeir eru verðmætir. Dönsku bílarnir Tekno eru samt enn dýrari. Þeir hlaupa á tugum eða hundruðum þúsunda króna eintakið ef þeir eru í original kassa og í topp standi. En fátækur sölumaður á Íslandi hefur ekki bolmagn í það. Þó hafa fyrstu bílarnir sem ég safnaði hækkað í verði á síðustu árum.“Brotabrot af safninu.Nokkra Corgi bíla frá pabba sínum kveðst Sigurvin eiga enn - ekki marga. Söfnunin hafi byrjað þegar hann fór að skoða þá. „Ég sló þessu merki upp á netinu og sá hverskonar söfnun var í gangi, þá fór ég að kaupa einn og einn og það tekur engan endi. Fólk er líka að færa mér bíla úr geymslunni, ég tek fúslega við þeim þó þeir séu illa farnir því ég geri þá upp líka.“ Að laga James Bond- og Batman bílana segir Sigurvin eins og að gera við úr, allskonar smáatriði sem gaman sé að glíma við. „Það er líka sjarmi yfir sumum þessum gömlu bílum sem eru með rispur og beyglur. Þeir hafa sál.“ Synir Sigurvins Ari og Arnar, sjö og fimm ára, hafa að sjálfsögðu gaman af bílunum. „Strákarnir eru aðallega reynsluökumenn,“ segir Sigurvin. „Þeir eru með mér í þessu, enda erfingjar krúnunnar.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Fleiri fréttir „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“