Kostnaður við nýbyggingu íbúða að ná jafnvægi 19. nóvember 2010 11:54
Ef marka má vísitölu byggingarkostnaðar virðist kostnaður við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis vera að ná jafnvægi eftir mikla hækkun í kjölfar falls krónu fyrir liðlega tveimur árum síðan. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar lækkaði vísitala byggingarkostnaðar fyrir desember um 0,1% frá fyrri mánuði. Hefur vísitalan þá hækkað um 0,9% frá sama mánuði í fyrra, en svo lítil hefur 12 mánaða hækkun hennar ekki verið frá miðju árinu 1993. Til samanburðar fór 12 mánaða hækkun vísitölunnar mest í nærri 29% í febrúar 2009, og á þenslutímabilinu árin 2004 - 2007 hækkaði hún að jafnaði um 6,8% á ári hverju. Frá ársbyrjun hefur verðhækkun á innlendu efni verið drýgsti hækkunarvaldur byggingarkostnaðar, en innlent efni hækkaði í verði um 8,4% milli janúar- og desembergilda vísitölunnar. Á sama tímabili hækkaði kostnaður við vélar, flutninga og orkunotkun um 4,6%. Vinnuliður vísitölunnar lækkaði hins vegar á þessum tíma um 6,6%, og svipaða sögu má segja af innfluttu efni sem lækkaði í verði um 2,5% á tímabilinu. Frá ársbyrjun 2008 hefur kostnaðarverð á fermetra í vísitöluíbúð skv. vísitölu byggingarkostnaðar hækkað um ríflega þriðjung. Á sama tíma hefur verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæði lækkað um nærri 14%, ef miðað er við vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæði sem Þjóðskrá reiknar út. Mjög hefur því dregið saman með byggingakostnaði og söluverði íbúða frá því sem var fyrir hrun, jafnvel svo að ekki svari lengur kostnaði að byggja íbúðarhúsnæði til sölu í mörgum tilfellum. Nýbyggingar munu því væntanlega verða með minnsta móti næstu misserin.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira