Magnaður uppgangur veðmálafyrirtækis Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 10. maí 2012 21:00 Betsson AB rekur fjölda veðmálavefsíða á netinu en þeirra þekktust er sennilega hin samnefnda Betsson sem margir Íslendingar þekkja. Fréttablaðið/Stefán
Sænska veðmálafyrirtækið Betsson AB, sem margir Íslendingar þekkja, tók í apríl yfir samkeppnisaðila að nafni Nordic Gaming Group (NGG) sem skráð er á Möltu. Betsson greiðir 65 milljónir evra, jafngildi 10,5 milljarða íslenskra króna, fyrir félagið og er með kaupunum orðið eitt stærsta veðmálafyrirtæki í Evrópu. Yfirtakan á NGG er einungis nýjasta skrefið í uppgangi Betsson sem hefur vaxið á ógnvænlegum hraða síðustu ár. Fyrirtækið rekur fjölmargar veðmálavefsíður en hjá fyrirtækinu starfa nú um 460 manns. Hagnaður þess nam 9,6 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári og hefur tvöfaldast á þremur árum. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs jukust tekjur um 28 prósent til viðbótar og þá mun yfirtakan á NGG vafalítið auka tekjur þess til muna. Veðmálamarkaðurinn á netinu hefur stækkað ört á undanförnum árum og ekki sér fyrir endann á þeirri þróun. Einn helsti aflvaki vaxtarins er að nýir markaðir hafa opnast fyrir veðmálafyrirtækjum með breytingum sem víða hafa orðið á lagaumhverfi slíkra fyrirtækja en starfsemi þeirra hefur löngum verið takmörkuð. Eins og áður sagði er Betsson AB sænskt fyrirtæki en það var um tíma að stórum hluta í eigu Íslendinga. Í júlí árið 2005 keypti fjárfestingarbankinn Burðarás, sem síðar sameinaðist Straumi, 25,06% hlut í sænsku getrauna- og leikjafyrirtæki sem hét þá Cherry-företagen og rak meðal annars veðmálavefinn Betsson. Verðmæti viðskiptanna var ekki gefið upp en sænskir fjölmiðlar töldu það vera um 200 milljónir sænskra króna, sem jafngilti 1,7 milljörðum íslenskra króna miðað við þáverandi gengi. Síðar jók sameinaður banki hlut sinn í fyrirtækinu í 29%. Cherryföretagen breytti skömmu síðar nafni sínu í Net Entertainment og var skipt upp í þrjú félög; CherryCasino, Betsson AB og Net Entertainment. CherryCasino rann svo síðar aftur inn í Betsson. Þegar Burðarás keypti hlut sinn voru bréf í Betsson seld í sænsku kauphöllinni á 28 sænskar krónur. Tveimur árum síðar, í júní árið 2007, þegar Straumur-Burðarás seldi hlutinn í Betsson var hlutabréfaverðið rétt tæpar 60 sænskar krónur. Var hlutur félagsins því seldur á 4,4 milljarða íslenskra króna. Rúmu ári síðar seldi Straumur hlut sinn í Net Entertainment og var áætlað að fyrirtækið hefði hagnast um sem nam 720 milljónum króna á þeim tíma vegna sölunnar. Upphafleg fjárfesting Burðaráss skilaði Straumi-Burðarási sem sagt talsverðum hagnaði. Þrátt fyrir það má telja líklegt að fyrrum eigendur Straums, sem var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu í mars 2009, nagi sig í handarbökin að hafa selt hlut sinn í Betsson á árinu 2007. Því til staðfestingar má skoða þróun hlutabréfaverðs félagsins. Verð á hlut í Betsson er nú 221,5 sænskar krónur í sænsku kauphöllinni en eins og áður sagði var það rétt tæpar 60 sænskar krónur þegar Straumur seldi hlut sinn. Markaðsvirði fyrirtækisins er 9,3 milljarðar sænskra króna og væri 29 prósenta hlutur Straums því virði jafngildi rúmra 50 milljarða íslenskra króna í dag. Hefur verðmæti hans því rúmlega tífaldast á þeim tæpu fimm árum sem liðin eru frá sölunni þó hluta þessa megi vitaskuld rekja til veikingar krónunnar á tímabilinu. Að lokum má taka fram að í viðskiptum er alltaf auðvelt að finna dæmi um frábærar eða misráðnar fjárfestingar eftir á. Fyrir fram reynist það hins vegar yfirleitt þrautin þyngri eins og dæmin sanna.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent