Skammsýni að styðja ekki við námsmenn erlendis Una Sighvatsdóttir skrifar 6. desember 2015 19:00
Framlag ríkisins til Lánasjóðs íslenskra námsmanna verður lækkað um tæpan hálfan milljarð milli ára, samkvæmt frumvarpi að fjárlögum 2016 sem afgreitt var úr fjárlaganefnd í gær. Í nefndaráliti meirihlutans kemur fram að mestu muni um þennan niðurskurð til að vega upp á móti auknum útgjöldum í aðra málaflokka. Rökstuðningurinn er sá að nýjum lánþegum hafi fækkað. Samband íslenskra námsmanna erlendis vöruðu nýlega, með grein í Fréttablaðinu, við þeirri þróun að námsmönnum erlendis sem sæki um lán fari fækkandi með hverju ári, sem rekja megi til þess að framfærsla til stúdenta erlendis hefur verið lækkuð tvöár í röð. Hjördís Jónsdóttir framkvæmdastjóri sambandsins segir stúdenta leita leiða til að fjármagna sig öðru vísi ef þeim finnist þeir ekki geta treyst á LÍN. Meðal annars hefur komið fram aðí Danmörku fjölgar íslenskum stúdentum sem þiggja styrk fráþarlendum stjórnvöldum í staðíslenskra lána. „Við getum eiginlega ekki gert ráð fyrir að 1100 íslenskir námsmenn fái bara styrk frá dönskum yfirvöldum í framtíðinni. Við getum ekki sett það inn í plönin okkar, þó að staðan sé þannig núna, þá getum við ekki haft áhrif á þetta. Þanni að þetta er svolítið óþægileg staða að vera í. Hvað gerist ef það verður lokað fyrir þetta eftir 1-2 ár? Það er búið að skera niður framlög til LÍN, og þá hafa færri tækifæri til að sækja sér nám erlendis. Þannig að já, við höfum áhyggjur af þessu." Hún segist sakna þess að sjá stjórnvöld taka skýrari afstöðu til mikilvægis framhaldsmenntunar utan landsteinanna. „Manni finnst þetta svolítil skammsýni, að það sé ekki lögð áhersla á akkúrat þennan hluta. Ég held einmitt að við séum að njóta góðs af því í dag hversu margir hafa farið í gegnum tíðina erlendis í tækni, hönnun, listir. Alls þessa sem við njótum góðs af í okkar einangraða samfélagi."
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira