Áfengissalan jókst um 14,4% milli ára í mars 15. apríl 2010 13:56
Sala áfengis jókst um 14,4% í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 35,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu áfengis í mars 0,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 18,7% hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í yfirliti frás Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að velta í dagvöruverslun jókst um 8,3% á föstu verðlagi í mars miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 16,2% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu dagvöruverslana í mars 4,1% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 7,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Fataverslun var 1,1% minni í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 12,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum var 14,1% hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar minnkaði um 1,6% í mars á föstu verðlagi og minnakði um 21% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í desember um 22,9% frá mars í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 0,1% minni í mars en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 13,6% á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 3% frá því í fyrra á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum var 13,7% hærra í mars síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í mars jókst um 1,8% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 14,9% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 12,9% frá mars 2009. Sú aukning sem varð í verslun með dagvöru og áfengi í mars miðað við sama mánuð í fyrra má að einhverju leyti rekja til þess að páskaverslun var í mars á þessu ári en í apríl í fyrra. Þó söluaukning hafi orðið á dagvöru frá síðasta ári var hún 4,7% minni en í mars 2007 og 6,5% minni en í mars 2008 þegar veltuvísitalan hefur verið leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum, eins og páskaversluninni. Þróunin undanfarna mánuði gefur vísbendingu um að botninum sé náð og neysla á mat og drykk farin að glæðast á ný. Sala áfengislítra dróst saman um 1,34% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs miðað við sömu mánuði í fyrra. Sala á léttum vínum í mars jókst 32,2% í lítrum talið miðað við mars í fyrra, sala á bjór í lítrum talið jókst á sama tíma um 19,11% en samdráttur varð í sölu á sterkum vínum um 0,84%. Þannig má ætla að vegna hækkunar áfengisgjalds að undanförnu hafi landsmenn fært neyslu úr sterkum drykkjum og yfir í bjór og léttvín. Það sem af er þessu ári hefur verslun með föt og raftæki verið mjög sambærileg við það sem hún var á sama tímabili í fyrra að magni til. Húsgagnaverslun fer einnig að nálgast að vera sambærileg og var á sama tíma í fyrra þó hún sé 55% minni en fyrir tveimur árum síðan. Rannsóknasetur verslunarinnar mun framvegis reikna veltuvísitölu vegna sölu á rúmum, sem byggir á veltutölum frá nokkrum helstu rúmaverslunum landsins. Sú velta er hluti af veltuvísitölu húsgagnaverslana. Samkvæmt þeirri mælingu var velta rúmaverslana nákvæmlega sú sama í mars síðastliðnum miðað við mars í fyrra. Sala á rúmum hefur þróast nokkuð í takt við þróun veltu annarrar húsgagnaverslana í landinu undanfarið ár.
Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Sjá meira