LV lækkar lífeyrisgreiðslur um 10% frá júlí 15. apríl 2010 08:00
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hefur ákveðið að leggja til við aðildarsamtök sjóðsins að lækka greiðslur til lífeyrisþega um 10% frá og með 1. júlí 2010 og að áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga verði lækkuð um 10% frá 1. janúar 2010. Þessi ráðstöfun er bein afleiðing yfirstandandi fjármálakreppu sem því miður hefur komið niður á ávöxtun eigna sjóðsins.Í tilkynningu segir að tryggingafræðileg athugun á sjóðnum, sem miðuð var við árslok 2009, leiddi í ljós að heildareignir sjóðsins, samanborið við heildarskuldbindingar hans, eru neikvæðar um 10,8%. Lög um starfsemi lífeyrissjóða mæla fyrir um að eignir þeirra og skuldbindingar til framtíðar þurfi að standast á, þó heimilt sé að víkja frá því tímabundið.Því er ljóst að lagfæra þarf tryggingafræðilega stöðu sjóðsins og endurskoða lífeyrisréttindi og lífeyrisgreiðslur, eins og nú hefur verið lagt til. Vel hefur tekist að laga sjóðinn að breyttu efnahagsumhverfi, því nafnávöxtun ársins 2009 nam 10,0% sem svarar til 1,2% ávöxtunar umfram verðbólgu.Lífeyrisgreiðslur ráðast einkum af iðgjöldum, raunávöxtun, lífaldri sjóðfélaga og örorkutíðni. Lífeyris-greiðslur frá sjóðnum hafa hækkað meira en sem nemur hækkun launavísitölu síðastliðinn áratug, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Lækkun lífeyrisgreiðslna um 10% samsvarar því hækkun lífeyrisgreiðslna vegna verðtryggingar ársins 2009 og það sem af er árs 2010.Á tímabilinu 1997 til ársins 2009 voru lífeyrisréttindi sjóðfélaga hækkuð í þremur áföngum um 21,1% umfram verðlagsbreytingar. Eftir lækkunina nú nemur þessi hækkun 9% þrátt fyrir áhrif fjármálakreppunnar.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira