SA: Störfum gæti fækkað um 1.500 á almennum markaði 15. apríl 2010 14:11 Nettófækkun starfsmanna verður því 1,8% af starfsmannafjölda. Yfirfært á atvinnulífið í heild samsvarar þessi niðurstaða fækkun um rúmlega 1.500 starfsmenn í þessum atvinnugreinum á árinu.
Helmingur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggst ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á þessu ári en fjórðungur hyggst fjölga starfsmönnum og sama hlutfall fækka þeim. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar SA meðal aðildarfyrirtækja. Niðurstaðan bendir til þess að störfum á almennum vinnumarkaði fækki um rúmlega 1.500 á árinu. Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Þar segir að könnunin var rafræn og gerð meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 7.-14. apríl 2010 en framkvæmd hennar var í höndum Outcome hugbúnaðar ehf. Markmiðið með könnuninni var að fá skýrari mynd af horfunum framundan um atvinnustig og fjárfestingar í íslensku atvinnulífi. Fjöldi svarenda var 355 og störfuðu 24.200 starfsmenn hjá viðkomandi fyrirtækjum. 45% fyrirtækjanna var með 10 starfsmenn eða færri, 33% með 11-50 starfsmenn og 22% með fleiri en 50 starfsmenn. Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 87.000 manns um þessar mundir. Spurt var um áætlaða heildarbreytingu á starfsmannafjölda í fyrirtækjunum á árinu 2010. Niðurstöður voru þær að fjórðungur (24%) hyggst fjölga og annar fjórðungur (26%) fækka starfsmönnum en helmingur fyrirtækjanna áformar að starfsmannafjöldi verði óbreyttur. Af fyrirtækjum sem hyggjast fjölga starfsmönnum áforma 86% að fjölga um innan við tíu starfsmenn, 10% að fjölga um 11-50 starfsmenn og 4% að fjölga um fleiri en 50. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum áforma tæplega 70% að fækka um innan við tíu starfsmenn, fjórðungur hyggjast fækka um 11-50 og 4% áformar fækkun um fleiri en 50 starfsmenn. Þegar svör fyrirtækjanna eru vegin saman eftir stærð þeirra fæst sú niðurstaða að fjölgun starfsmanna hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem hyggjast fjölga á árinu er 2,7% af heildar starfsmannafjölda en fækkunin hjá þeim sem áforma fækkun nemur 4,5%. Nettófækkun starfsmanna verður því 1,8% af starfsmannafjölda. Yfirfært á atvinnulífið í heild samsvarar þessi niðurstaða fækkun um rúmlega 1.500 starfsmenn í þessum atvinnugreinum á árinu. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 8 milljörðum króna á ársgrundvelli. Í hótel og veitingastarfsemi er áformuð tæplega 5% fjölgun starfsmanna og um 1,5% fjölgun í fjármálaþjónustu. Mest fækkun er fyrirhuguð í sjávarútvegi, um 7%, um 3% fækkun í verslun og samgöngum, 1,5% fækkun í iðnaði og 1% fækkun í veitustarfsemi.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira