ÍLS átti 347 íbúðir í árslok, eiginfjárstaðan hættulega lítil 15. apríl 2010 19:16 Á árinu leysti sjóðurinn til sín 251 íbúð til fullnustu krafna. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 347 í árslok 2009 og fjölgaði um 151 frá árslokum 2008.
Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs (ÍLS) nam 3.2 milljörðum kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í árslok var rúmlega 10 milljarðar kr. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 347 í árslok 2009. Þetta kemur fram í ársreikningi sjóðsins sem birt er á vefsíðu Kauphallarinnar. Þar kemur fram að eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð... um Íbúðalánasjóð er 3,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Í samræmi við 7. grein framangreindrar reglugerðar gerði sjóðurinn félags- og tryggingamálaráðherra grein fyrir því að að eiginfjárhlutfall sjóðsins stefndi undir 4,0%. Stjórn sjóðsins vinnur nú að tillögum um leiðir til að ná langtímamarkmiði um eiginfjárhlutfall en sjóðurinn hefur nú þegar hækkað vaxtaálag á nýjum útlánum. Á árinu leysti sjóðurinn til sín 251 íbúð til fullnustu krafna. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 347 í árslok 2009 og fjölgaði um 151 frá árslokum 2008. Í árslok námu útlán 756.6 milljörðum kr. og hækkuðu um 76.2 milljarða kr. á árinu. Lántaka sjóðsinsnam 784,6 milljörðum kr. og hækkaði um 71,9 milljarða kr. á árinu. Virðisrýrnun útlána nam 3,4 milljörðum kr. í lok árs 2009 og hækkar um 1,8 milljarða kr. frá fyrra ári. Vanskil hafa aukist milli ára en um 5,3% lántakenda sjóðsins eru með einn eða fleiri gjalddaga í vanskilum í árslok 2009. Í ársreikningnum segir að kreppan sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum frá haustmánuðum 2008 hefur haft veruleg áhrif á Íbúðalánasjóð. Sjóðurinn átti 16,6 milljarða kr. kröfu á viðskiptabankana vegna skuldabréfa og afleiðusamninga við fall þeirra í október 2008. Á sama tíma skuldaði hann þeim 5,3 milljarða kr. vegna afleiðusamninga og íbúðabréfa. Á árinu 2009 vék Fjármálaeftirlitið (FME) stjórnum SPRON og Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. frá og skipaði skilanefndir yfir bankana. Samkvæmt ákvörðun skilanefnda var innlánum Íbúðalánasjóðs að fjárhæð kr. 5,3 milljarða kr. haldið eftir á lokuðum reikningum. Á árinu 2009 var niðurfærsla að fjárhæð 2.9 milljarða kr. gjaldfærð í rekstrarreikningi vegna fyrrgreindra krafna Sú niðurfærsla kemur til viðbótar niðurfærslu að fjárhæð 7,9 milljarða kr. sem færð var í rekstrarreikningi ársins 2008 til að mæta áætluðu tapi sjóðsins. Í heild hefur því verið færð niðurfærsla að fjárhæð 10,8 milljarða kr. vegna þessara krafna. Á meðal krafna á lánastofnanir eru eignfærðar tæplega 2.4 milljarðar kr. Í uppgjöri sjóðsins er gengið út frá að hann eigi rétt á skuldajöfnun. Óvissa er um uppgjör krafna og afleiðusamninga ásamt heimild sjóðsins til skuldajöfnunar. Á árinu 2010 hefur sjóðurinn náð samningum við SPRON, en enn er ágreiningur um innstæður sjóðsins hjá Straumi-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanleg uppgjör fara fram.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira