Hækkun á virðisaukaskatti gistingar skoðuð 9. ágúst 2012 05:30 Oddný G. Harðardóttir
Virðisaukaskattur á gistingu gæti hækkað úr 7%, lægsta skattþrepinu, í 25,5%, almenna skattþrepið, í nýju fjárlagafrumvarpi. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær en Samtök ferðaþjónustunnar eru mjög gagnrýnin á hugmyndina. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir að margar hugmyndir hafi verið ræddar við vinnslu fjárlagafrumvarpsins eins og eðlilegt sé. „Það lak út að við hefðum verið að hugsa á þessum nótum en við viljum tala við hagsmunaaðila áður en við ræðum þessar hugmyndir frekar við fjölmiðla,“ segir Oddný. Alþingi samþykkti á síðasta ári nýjan skatt sem heitir gistináttagjald. Gjaldið felur í sér að hótel og aðrir gististaðir þurfa að greiða 100 krónur fyrir hverja gistinótt gesta sinna. Oddný segir það ekki launungarmál að gjaldið hafi ekki skilað þeim tekjum í ríkissjóð sem vonast var eftir. Því hafi verið ræddar aðrar leiðir til að afla fjármuna fyrir uppbyggingu á innviðum ferðaþjónustunnar en gjaldinu var ætlað að renna til slíkra verkefna. Samtök ferðaþjónustunnar brugðust ókvæða við frétt RÚV frá því í gær. Í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér segir að skatturinn muni þýða 17,3% hækkun á verði gistingar í landinu. Þá segir enn fremur að slík hækkun muni skattpína þá hratt vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er út af markaðnum og auka svarta atvinnustarfsemi. Loks kom fram í tilkynningunni að fjármála- og iðnaðarráðherra hefðu óskað eftir fundi með forystu samtakanna til að ræða þessar hugmyndir.- mþl
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira