Jepplingar með "coupe“-lagi að deyja út Finnur Thorlacius skrifar 9. október 2013 13:15 Meira að segja BMW getur litið illa út með þessu lagi.
Sölutölur benda til þess að engir vilji lengur jepplinga með „coupe“-lagi sem lækka verulega að aftan. Það er kannski ekki nema von því útlit þeirra er stórfurðulegt og notagildið er skert verulega með þessari einkennilegu lækkun að aftan, sem oft bitnar illa á aftursætisfarþegum, auk flutningsrýmis. BMW X6 er gott dæmi um svona bíla og hann selst sérlega illa þessa dagana. Það á einnig við BMW 5 GT, Honda Crosstour, Acura ZDX, Toyota Venza og Infinity QX70 en allir þessir bíla hafa verið framleiddir sérstaklega með Bandaríkjamarkað í huga. Meira að segja Bandaríkjamenn, sem virðast hafa óseðjandi smekk fyrir ljótum bílum, vilja ekki sjá bíla með þessu lagi og munu fáir bílaáhugamenn ekki gráta það að þeir hverfi fljótt af sjónarsviðinu. Sala þessara bíla hefur hrunið frá 39% til 80% í ár samanborið við í fyrra og líklegt er að framleiðslu flestra þeirra, ef ekki allra, verði hætt.Annað gott dæmi um ófríðleika, Honda Crosstour
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent