Hagnaður Eimskips 1,5 milljarðar á fyrstu 9 mánuðum ársins 19. nóvember 2010 14:53
Hagnaður Eimskips fyrstu níu mánuði árins eftir skatta nam 1,5 milljörðum króna. Þetta er umfram væntingar þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði. Heildarvelta samstæðunnar var 46 milljarðar króna og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjámagnsliði var jákvæður um 5 milljarða króna. Í tilkynningu segir að heildareignir félagsins í lok september voru 45 milljarðar króna og er eiginfjárhlutfallið 54,3%. Vaxtaberandi skuldir eru 11 milljarðar króna. Rekstrarhagnaður á þriðja ársfjórðungi er jákvæður um 1,7 milljarða króna og hagnaður eftir skatta er 300 milljónir króna. Afkoma á þriðja ársfjórðungi er umfram væntingar. Árstíðarbundnar sveiflur í flutningum á Íslandi eru að breytast og magnið á þriðja og fyrsta ársfjórðungi er það sama, sem er ekki í takt við árstíðarbundnar sveiflur undanfarinna ára. „Það er ánægjulegt að sjá að þetta er fjórði ársfjórðungurinn í röð eftir að fjárhagslegri endurskipulagningu lauk sem skilar jákvæðri afkomu. Flutningamagnið helst stöðugt á milli tímabila en jafnframt eru árstíðabundnar sveiflur ekki eins miklar og áður tíðkaðist. Varðandi horfur með inn- og útflutning á Íslandi teljum við að botninum sé náð og að ekki sé fyrirsjáanlegur vöxtur á árinu 2011," segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips í tilkynningunni. „Starfsemin á öðrum markaðssvæðum á Norður Atlantshafi einkennist einnig af töluverðri óvissu, meðal annars í Færeyjum þar sem hluti bankakerfisins féll og nokkur fyrirtæki eiga í erfiðleikum. Markaðir í Noregi og á Nýfundnalandi eru hinsvegar í vexti vegna nýrra fjárfestingaverkefna sem og aukningar á kvóta. Eimskip er vel í stakk búið að takast á við þessa óvissutíma. Til að tryggja viðunandi innri vöxt er félagið að vinna í því að efla þjónustuframboð félagsins í Bandaríkjunum og Kanada, ásamt því að auka flutningaþjónustu félagsins í frystiflutningsmiðlun um heim allan."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira