Viðskipti innlent

Slök vika á fasteignamarkaði höfuðborgarinnar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 12. nóvember til og með 18. nóvember 2010 var 49. Þar af voru 39 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.211 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,7 milljónir króna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar má sjá að þessi fjöldi kaupsamninga er nokkuð minni en meðaltal síðustu 12 vikna sem er 72 samningar á viku. Veltan er 750 milljónum kr. minni en 12 vikna meðaltalið og upphæð á samning er 2,5 milljónum kr. minni en meðaltalið.

Í vikunni var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 411 milljónir króna og meðalupphæð á samning 82,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 188 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þeir voru um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 98 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,5 milljónir króna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×