Viðskipti innlent

Japanskt matsfyrirtæki setur Ísland í ruslflokk

Japanska matsfyrirtækið R&I hefur sett lánshæfiseinkunn Íslands niður í ruslflokk með neikvæðum horfum. Einkunin var lækkuð úr BBB- og í BB+.

Í áliti frá R&I segir meðal annars að þótt tvö ár séu liðin frá bankahruninu á Íslandi hafi endurreisnin ekki tekist sem skyldi og fyrirtæki og einstaklingar búi við miklar skuldabyrðar.

Ísland hafi ekki fundið lykilinn að efnahagsbata. Þá hafi opinberar skuldir blásið út og séu orðnar meiri en landsframleiðsla landsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×