Orkuveitan skilaði tæplega 17 milljarða hagnaði Valur Grettisson skrifar 19. nóvember 2010 16:15 Orkuveitan.
Hækkun á gengi íslensku krónunnar og lækkandi fjármagnskostnaður tryggði að rekstur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skilaði 16,8 milljarða króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitunni. Heildarskuldir eru talsverðar, eða 229 milljarðar króna, en hafa lækkað um 12,3 milljarða frá áramótum. Heildareignir eru 286 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall fyrirtækisins því 20,1%. Árshlutareikningur samstæðu OR var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst um 11,5% það sem af er ári. Greiddir vextir fyrstu níu mánuði ársins námu 1,5 milljörðum króna. Samsvarandi fjárhæð 2009 var 4,1 milljarður króna. Vaxtakostnaður lækkar því á milli ára um tvo þriðju, eða 2,6 milljarða. Ástæðan er að á árinu 2009 þurfti OR að leita á íslenskan lánamarkað, þar sem vextir eru meira en tífaldir meðalvextir erlendra lána OR, sem eru nú 1,01%. Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 16.794 milljóna króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins 2010 samanborið við 11.288 milljóna króna tap á sama tímabili 2009. Rekstrartekjur tímabilsins námu 19.444 milljónum króna en voru 17.960 milljónir króna sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 9.886 milljónir króna samanborið við 8.526 milljónir króna sama tímabil árið áður. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 18.395 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 15.173 milljónir á sama tímabili árið 2009. Heildareignir þann 30. september 2010 voru 286.030 milljónir króna en voru 281.526 milljónir króna 31. desember 2009. Eigið fé þann 30. september 2010 var 57.446 milljónir króna en var 40.657 milljónir króna 31. desember 2009. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. September 2010 voru 228.583 milljónir króna en voru 240.868 milljónir króna í árslok 2009. Eiginfjárhlutfall var 20,1% þann 30. september 2010 en var 14,4% í árslok 2009.
Mest lesið Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira