Atvinnulíf

Fólk er ekki annars hugar þótt það kroti á blað á meðan það hlustar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Krot af vefsíðunni 99design
Krot af vefsíðunni 99design

Það kannast margir við að fara oft ósjálfrátt að krota eitthvað á blað þegar það er að hlusta á eitthvað eða einhvern. Þetta er algeng sjón á fundum og eins eru margir gjarnir á að krota á blað þegar þeir tala við fólk í síma.

Að halda að þessi ávani sé vísbending um að viðkomandi sé eitthvað annars hugar er á miklum misskilningi byggt því rannsóknir sýna einmitt hið gagnstæða: Að krota á blað er sagt gott fyrir minnið.

Niðurstöður rannsóknar

Í grein sem birt var á Harvard Health fyrir nokkrum árum segir prófessor að það að krota á blað á meðan hlustað er, hafi ekki aðeins verið sýnt fram á í rannsóknum að væri gott fyrir minnið heldur hefði þessi ávani mælst vel fyrir hjá læknanemum við háskólann. Nemendur sem væru gjarnir á að krota á blað þegar þeir hlustuðu, væru að ná betri árangri.

Að hans sögn er reyndar ekki vitað hvers vegna þessi ávani er svona algengur en smátt og smátt erum við að læra meira um það hvað gerist í heilanum á meðan við krotum. 

Krot er til dæmis sagt hafa jákvæð áhrif á minni, það heldur okkur vakandi og við erum líklegri til að halda fókus þegar að við hlustum. Þá er krotið ákveðin hvíldarstaða á meðan hlustað er því það reynir á hjá okkur að þurfa alltaf að vera vakandi og meðvituð um allt sem er í kringum okkur. Með krotinu erum við í hvíld en samt að hlusta.

Krot er „hugsunar-tækni“ sagði Sunni Brown höfundur bókarinnar „The Doodle Revolution“ í viðtali við Wall Street Journal hér um árið. Að hennar mati notum við það að krota á blað sem leið til að vinna úr upplýsingum eða leysa úr vandamálum.

Í þeirri grein er rannsókn frá árinu 2009 lýst nánar, en það er sú rannsókn sem oftast er vísað í þegar staðhæft er að krot á blað auki á minni fólks.

Rannsóknin fór þannig fram að mörg nöfn voru lesin upp en þeir sem hlustuðu voru ýmist einstaklingar sem krotuðu á blað á meðan, eða gerðu það ekki. Einstaklingarnir vissu ekki að þeir yrðu eftir á spurðir út í nöfnin úr upptalningunni.

Niðurstöðurnar sýndu að fólkið sem krotaði á meðan það var að hlusta, mundi 29% fleiri nöfn úr upptalningu en hinir.

Hvað segir krotið um þig?

Það getur verið gott að krota á blað þegar hlustað er á fundum.Vísir/Getty

Þá hafa enn aðrir reynt að túlka krot hvers og eins og frægt er orðatiltæki Max Pulver sem sagði að ómeðvitað krot væri í raun endurspegla sjálfsmynd hvers og eins (e. „Writing conciously is the same thing as unconscoiusly drawing a self portrait“).

Á vefsíðunni 99design má finna ýmsar kenningar um það hvað krot segir um hvern og einn og hér eru nokkrar þeirra.

  • Að teikna fólk: Viðkomandi teiknari er sjálfsöruggur og gengur vel að ná markmiðum sínum.
  • Að teikna andlit: Falleg andlit endurspegla jákvæðni og almenna bjartsýni en ljót andlit neikvæðni og tortryggni. Meira er hægt að túlka út frá augum og munni teikningar.
  • Að teikna blóm: Í dag þykir þetta umhverfisvæn sýn en almennt er lýsingin með blómum sú að viðkomandi teiknari sé hlýr persónuleiki, viðkvæmir en næmir á umhverfi sitt. Jákvæðasta birtingarmyndin þykja blóm sem eru hringlaga teiknuð.
  • Ferhyrningar, form og kassar: Viðkomandi manneskja er dugleg, fljót að greina aðstæður og góður stjórnandi. Leysir mál með rökhugsun.
  • Örvar: Ef örvarnar snúa upp þýða þær að viðkomandi hefur mikinn metnað, er bjartsýnn og jákvæður. Örvar sem snúa niður þýða hið gagnstæða, þ.e. viðkomandi hefur áhyggjur, er svartsýnn og vonlaus. Miklu skiptir þó að skoða hvort eitthvað annað er teiknað með örvunum líka og túlka myndir útfrá því. Örvar dregnar með hjörtum endurspeglar löngun í ást og kærleika.
  • Bogadregnar línur: Viðkomandi veit hvert hann/hún þarf að fara en veit ekki hvernig á að komast þangað.
  • Zikk zakk línur: Algengara munstur hjá karlmönnum. Beinar línur og beitt horn endurspegla óþolinmæði og jafnvel ákveðna árásargirni.
  • Stjörnur: Ein stór stjarna bendir til þess að viðkomandi hefur eitt stórt markmið umfram önnur en margar stjörnur að viðkomandi er með skýran fókus og er mjög traustur. Ósamhverfar stjörnur sem eru allt út um allt þýðir að viðkomandi er duglegur og hugmyndaríkur.
  • Fiðrildi: Löngunin til að vera frjáls og öðrum óháður.
  • Að teikna kóngulóarvef: Táknar að viðkomandi upplifir sig fastan í einhverjum aðstæðum eða vill losna við einhvern.

Tengdar fréttir

Góð ráð fyrir verkefnalistann og forgangsröðun verkefna

Að gera góðan verkefnalista fyrir daginn getur létt á verkefnaálagi og áhyggjum eða því að gleyma að koma einhverju ákveðnu í verk. En hvernig gerum við listan og hvernig er best að forgangsraða verkefnum?

Sjö góð ráð fyrir hundaeigendur í fjarvinnu

Hundar eru næmir á líðan eigenda sinna og félagsverur miklar. Það getur hins vegar skapað ný vandamál þegar hundaeigendur eru mikið heima, til dæmis í fjarvinnu eða eru frá vinnu vegna kórónuveirunnar eins og nú er algengt.

Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir

Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×